Við áramót Bjarni Benediktsson skrifar 31. desember 2011 13:13 Í lok árs er við hæfi að líta til baka yfir hið liðna, hvort sem er á hinum pólitíska vettvangi eða á öðrum sviðum þjóðlífsins. Til gleðiefna telst árangur fremsta íþróttafólks okkar á alþjóðavettvangi, ekki síst kvennalandsliðanna í handknattleik og knattspyrnu. Íslenskir listamenn, eins og Gyrðir Elíasson sem hlaut bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs, halda einnig áfram að bera hróður landsins víða. Nýtt tónlistarhús var tekið í notkun, við fögnuðum aldarafmæli Háskóla Íslands og 200 ára afmæli Jóns Sigurðssonar svo nokkrir ánægjulegir viðburðir séu nefndir. Hins vegar verður ekki horft fram hjá því að margir bundu vonir við að á þessu ári myndi hagur þeirra vænkast. Þær vonir brugðust því miður þrátt fyrir að ytri skilyrði hafi á margan hátt verið hagstæð. Enn og aftur voru skattar hækkaðir og aðrar álögur auknar á fólk og fyrirtæki.Umbrot víða um heim Arabíska vorið breiddist hratt út í ríkjum Norður-Afríku. Fyrstu kosningarnar eftir mótmælabylgjuna fóru fram í Túnis í október og þóttu þær takast vel. Miklu varðar að lýðræðisumbæturnar verði varanlegar, að haldið verði áfram á sömu braut og að lýðræðið breiðist út til fleiri ríkja. Það er brýnt hagsmunamál íbúa svæðisins og um leið heimsbyggðarinnar allrar. Því miður er það hins vegar langt í frá sjálfsagt. Fjármálamarkaðir um allan heim hafa skolfið á árinu og óróanum er enn ekki lokið. Ríkisstjórnir í Evrópu, Bandaríkjunum og víðar leita leiða til lausnar á skuldavandanum og áhyggjur af grundvelli samstarfsins um evruna varpa skugga á framtíðarhorfurnar. Á sama tíma eru ýmis ríki Asíu enn að auka efnahagslegan styrk sinn. Brasilía og jafnvel Rússland eru á sömu braut. Þessi breytta heimsmynd er meðal þess sem ríki Evrópu reyna að bregðast við í tíma og fullt tilefni er til að ræða af meiri alvöru hér á landi.Vannýtt tækifæri Góður afli, ekki síst í uppsjávartegundum, skilaði þjóðarbúinu gríðarlegum verðmætum. Í stað þess að nýta tækifærin sem í sjávarútveginum felast er greininni haldið í spennitreyju með stöðugum hótunum um að kollvarpa stjórnkerfi fiskveiða. Í sundurlyndi sínu getur ríkisstjórnin samt sem áður ekki einu sinni komið sér saman um með hvaða hætti kippa eigi stoðunum undan útgerð og fiskvinnslu. Afleiðing þessa stjórnleysis er hrun fjárfestinga. Án fjárfestinga verður ekki sótt fram til bættra lífskjara og samkeppnishæfni landsins aukin. Án þeirra verða ekki til ný störf. Fjandsamleg afstaða til atvinnulífsins almennt hefur dregið kjarkinn úr innlendum og erlendum fjárfestum. En áföllin hafa ekki eingöngu verið vegna aðgerða eða aðgerðaleysis stjórnvalda. Öflugt eldgos í Grímsvötnum minnti okkur óþægilega á að þrátt fyrir allt erum við á valdi náttúrunnar og enn á ný sýndi það sig hve mikilvægu hlutverki vísindamenn okkar og viðbragðssveitir gegna. Þrátt fyrir þetta gos og Eyjafjallagosið 2010 dafnaði ferðaþjónustan á árinu og áralangt markaðsstarf skilaði sér. Kannski er það vegna velgengninnar sem ríkisstjórnin telur rétt að skattleggja ferðaþjónustuna sérstaklega.Hæstiréttur virtur að vettugi Gamall draumur forsætisráðherra um skipan stjórnlagaþings snérist upp í martröð þegar Hæstiréttur Íslands komst að þeirri niðurstöðu að kosningin hefði verið ógild. Forsætisráðherra ákvað að virða niðurstöðu Hæstaréttar að vettugi og með stuðningi stjórnarþingmanna var nafni stjórnlagaþingsins breytt og stjórnlagaráð skipað. Ráðið lauk störfum, tillögur þess voru afhentar forseta Alþingis en hafa ekki enn verið ræddar. Athygli vekur að enginn alþingismaður hefur gert tillögur ráðsins að sínum - tillögur sem kostuðu skattgreiðendur um hálfan milljarð króna.Breytt Evrópa Oft hefur það verið broslegt að fylgjast með þegar forsætisráðherra neitar að horfast í augu við staðreyndir og jafnvel gamlir samherjar hennar sjá sig knúna til að taka til máls. En tregða stjórnarflokkanna til að horfast í augu við veruleikann er efnahagslegt vandamál í sjálfu sér. Þessi tregða kemur ekki síst fram í stefnu ríkisstjórnarinnar í Evrópumálum. Þrátt fyrir hinar miklu breytingar sem eru að verða á Evrópusambandinu, ekki síst vegna uppnáms í myntsamstarfinu og skuldastöðu einstakra aðildarríkja, er haldið áfram í blindni eins og ekkert hafi í skorist. Umsókn um aðild að ríkjasambandi, sem enginn veit hvernig mun þróast í náinni framtíð, skal haldið til streitu. Slíkt er ekki aðeins óábyrgt heldur beinlínis skaðlegt hagsmunum íslensku þjóðarinnar. Varlega stíga þeir þó fram, einn af öðrum, stuðningsmenn aðildarumsóknarinnar á Alþingi - þeir sem tryggðu meirihlutann - og segjast aldrei hafa meint að þeir vildu inn í sambandið.Við eigum alla möguleika Í haust lagði Sjálfstæðisflokkurinn fram ítarlegar tillögur í efnahagsmálum. Meginmarkmiðið er að skapa störf og verja heimilin og fyrirtækin. Með raunhæfum hætti er hægt að stórauka fjárfestingu, styrkja atvinnulífið, fjölga störfum, draga til baka skattahækkanir ríkisstjórnarinnar og auka ráðstöfunartekjur heimilanna. Nú við upphaf nýs árs er engin ástæða til annars en líta með bjartsýni til framtíðarinnar. Við skulum gefa okkur sjálfum það heit að á nýju ári verði framtakssemi fólksins í landinu virkjuð. Með því að leysa úr læðingi krafta einstaklinganna mun næsta framfaraskeið hefjast. En til þess þarf nýja stjórn, - nýja stefnu. Fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins óska ég landsmönnum öllum gleðilegs árs með ósk um velfarnað á komandi ári. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bjarni Benediktsson Mest lesið Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Skoðun Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar