Skoðun

Nýi kaflinn í iðnsögunni

Tinna Traustadóttir skrifar

Fyrsta alþjóðlega gagnaverið tók til starfa hér á landi fyrir um fimmtán árum þegar Verne hóf rekstur á Reykjanesi. Aðspurðir um ástæðuna fyrir því að Ísland hefði orðið fyrir valinu sögðu forsvarsmenn fyrirtækisins að hér væru kjöraðstæður fyrir slíka starfsemi, meðal annars þar sem gagnaverið yrði drifið af endurnýjanlegri raforku, hér væri hentugt loftslag til kælingar búnaðarins og hér væri tæknilæst og hámenntað starfsfólk. Eftirvæntingin var mikil og stjórnvöld vísuðu í að nýr kafli í iðnsögu Íslands væri að hefjast.

Gagnaverin á Íslandi eru vel til þess fallin að þjónusta starfsemi sem krefst mikillar reiknigetu. Fyrirtæki sem nýta sér þjónustu gagnaveranna í dag starfa í heilbrigðis-, lyfja- og fjármálageiranum, í bílaiðnaði og við veðurrannsóknir svo örfá dæmi séu tekin. Hinar miklu tækniframfarir í gervigreind opna svo á mikla möguleika til aukinnar framleiðni, hvert sem litið er. Til þess þarf mikla reiknigetu og gagnaverin hér á landi hafa beint sjónum sínum í auknum mæli að fyrirtækjum sem sérhæfa sig í gervigreind.

Eftirspurn eftir reiknigetu heldur áfram að aukast. Alþjóðlega orkustofnunin IEA spáir því að raforkunotkun gagnavera muni tvöfaldast til ársins 2030. Aðgengi að orku er því orðin ein helsta forsenda frekari uppbyggingar. Þetta hefur áhrif á staðarval gagnavera. Í Bandaríkjunum hafa meðal annars verið byggð gasorkuver í grennd við gagnaver með það að markmiði að stytta biðtíma. Í Evrópu hefur meiri áhersla verið lögð á að auka endurnýjanlega orkuvinnslu og finna staðsetningar sem henta raforkukerfinu vel. Sem dæmi reis fyrsta gagnaver Google í Finnlandi í bænum Hamina þar sem áður var pappírsverksmiðja.

Ísland ekki sjálfsagt val

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim fimmtán árum sem liðin eru frá gangsetningu gagnavers Verne á Íslandi. Eftir að atNorth og Borealis bættust við starfa hér á landi þrjú stór alþjóðleg gagnaversfyrirtæki. Öll eru þau með starfsemi á Reykjanesi, en árið 2018 var gagnaver Borealis á Blönduósi opnað og árið 2023 gagnaver atNorth á Akureyri.

Því er oft haldið fram að eftirspurn eftir raforku á Íslandi sé endalaus, en það er ekki rétt. Það er ekki sjálfsagt að Ísland verði fyrir valinu þegar gagnaver og önnur fyrirtæki í orkusækinni starfsemi kjósa sér stað fyrir starfsemi sína. Fyrirtækin starfa í alþjóðlegri samkeppni en völdu að fjárfesta hér á landi að vel ígrunduðu máli. Hér er ekki um neinar smáfjárhæðir að tefla. Áætlað er að fjárfestingar atNorth á Akureyri verði um 30 milljarðar króna. Það er sambærileg upphæð og rann til byggingar tónlistarhússins Hörpu.

Gagnaverin gera langtímasamninga um kaup á raforku og eru jákvæð viðbót í flóru orkusækinna fyrirtækja á Íslandi. En verðmætasköpunin er ekki takmörkuð við raforkukaup. Á uppbyggingartíma skapast verkefni fyrir verktaka, verkfræðistofur og þjónustufyrirtæki og þegar rekstur hefst verða til föst störf. Þá eru ótalin þau afleiddu áhrif sem starfsemi gagnavera hefur haft á stafræna innviði landsins. Sem dæmi hefur fjarskiptaöryggi Íslendinga stóraukist vegna gagnastrengja sem fylgja auknum umsvifum gagnavera.

Góð fyrirtæki eru góðir grannar

Við Íslendingar höfum úr takmörkuðum auðlindum að spila og þurfum að nýta þær sem best. Við viljum laða hingað fyrirtæki sem skapa mikil verðmæti, okkur öllum til hagsbóta. Uppbygging gagnavera á Íslandi er þegar farin að skila sér í stórauknum útflutningstekjum og fjárfesting í gagnaverstengdum iðnaði náði nýju meti á öðrum ársfjórðungi þessa árs, samkvæmt tölum frá Hagstofunni.

Við viljum að fyrirtæki sem starfa á Íslandi séu góðir nágrannar og leggi sitt af mörkum til samfélagsins. Það eru gagnaverin þegar farin að gera. Á Hringborði norðurslóða sagði forseti bæjarstjórnar Akureyrar, Gunnar Gunnarsson, að gagnaver atNorth væri fyrsta stóra atvinnuuppbyggingin í bænum í áratugi. Þá var uppbygging gagnaversiðnaðar á Íslandi umfjöllunarefni haustfundar Rafal á dögunum. Það var ánægjulegt að heyra hversu mikla áherslu gagnaversfyrirtækin leggja á samstarf við fræðasamfélagið um að mennta starfsfólk framtíðarinnar og á að nýta sérþekkingu innlendra verktaka. Fuse, nýtt félag á vegum Rafal sem styður við uppbyggingu og rekstur gagnavera, er gott dæmi um hversu mikil áhrif greinin er farin að hafa á íslenskt atvinnulíf.

Til þess að raungera þau tækifæri sem birtast í frekari uppbyggingu gagnaversiðnaðar hér á landi þarf orku. Við þurfum jafnframt að vera bæði framsækin og hagsýn við þróun flutningskerfisins. Þannig getum við haft mikil áhrif á framvinduna og skapað frjóan jarðveg fyrir orkusækin verkefni, samfélaginu öllu til hagsbóta.

Hjá Landsvirkjun er nú runnið upp stærsta framkvæmdatímabili í sögu fyrirtækisins og við viljum leggja okkar lóð á vogarskálarnar með því að styðja við spennandi tækifæri, þar á meðal í gagnaversiðnaði.

Höfundur er framkvæmdastjóri Sölu og viðskiptaþróunar hjá Landsvirkjun.




Skoðun

Sjá meira


×