Veruleg aukning í jólasölu Magasin du Nord 10. janúar 2011 09:37
Veruleg aukning varð á jólasölu Magasin du Nord í Kaupmannahöfn í fyrra miðað við árið á undan. Breska verslunarkeðjan Debenhams rekur nú Magasin. Í frétt um málið í Jyllands Posten segir að síðustu 19 vikurnar, fram til 8. janúar, hafi söluaukning Magasin du Nord numið 11,5% m.v. sama tímabil árið áður. Hinsvegar gekk móðurfélaginu sjálfu, Debenhams, ekki eins vel en söluaukning þess á sama tíma nam aðeins 0,3%. Veltan hjá Magasin á síðasta reikningsári nam tæpum 1,9 milljörðum danskra kr. eða um 38 milljörðum kr. ALMC, áður Straumur, í Danmörku á enn helminginn af fasteignum Magasin við Kongens Nytorv. Í fyrra keypti pakistanski fjárfesturinn Alshair Fiyaz að fullu eign ALMC í Solstra Holding, félagi sem hann og ALMC áttu saman að jöfnu. Inn í Solstra voru, auk Magasin, eignirnar stórverslunin Illum og Magasin-eignir í Lyngby, Árósum og Óðinsvéum. Eignirnar í Lyngby, Árósum og Óðinsvéum voru síðan seldar lífeyrissjóðunum ATP og PensionDanmark í lok síðasta árs.
Mest lesið Stærsti olíu- og gasfundur olíurisa í 25 ár Viðskipti erlent Þegar þreyttir starfsmenn mæta til vinnu eftir frí Atvinnulíf Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Viðskipti innlent Fyrsti vinnudagurinn eftir frí og níu góð ráð Atvinnulíf Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Viðskipti innlent Góð ráð við slæmum þynnkudegi í vinnunni Atvinnulíf Olís sektað um kvartmilljón vegna fullyrðinga um kolefnisjöfnun Neytendur Erfitt að vera mikið einn í vinnu og án mikilla samskipta Atvinnulíf Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Í vinnutengdri ástarsorg Atvinnulíf Fleiri fréttir Stærsti olíu- og gasfundur olíurisa í 25 ár Tíu prósenta tollur á færeyskar vörur Leist ekki á hagtölur og rak yfirmann stofnunarinnar Hagnaðist um 2,2 billjónir króna Gengi Novo Nordisk steypist niður Samkomulagið það besta mögulega í erfiðum aðstæðum Stærsti olíufundur Evrópu í áratug í Póllandi Hampiðjan kaupir ástralskan kaðlaframleiðanda Japanskir bílaframleiðendur í skýjunum eftir tollasamkomulag Hagnaðurinn af Labubu sagður hafa aukist um 350 prósent Hótar þrjátíu prósenta tolli á ESB Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Forstjóri X hættir óvænt Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Sjá meira