Hátíðarbrauð frá Ekvador 1. nóvember 2011 00:01 Hátíðarbrauðið góða.
Einn pk. þurrger, 1/4 bolli sykur, 1/3 bolli volgt vatn, 6 eggjarauður, 1 tsk. vanilludropar, 1/2 tsk. raspaður sítrónubörkur, 1/2 tsk. salt, 2 til 3 bollar hveiti, 8 msk. mjúkt smjör, 1/3 bolli súkkat, 1/4 bolli dökkar rúsínur, 1/4 bolli ljósar rúsínur, 1 bolli hakkaðar pekanthnetur eða valhnetur, 2 msk. bráðið smjör. Leysið gerið upp í volgu vatninu, ásamt 1 tsk. af sykri. Setjið í skál og blandið eggjarauðum, vanilludropum, sítrónuberki, salti og restinni af sykrinum saman við. Hrærið með sleif. Sáldrið helmingnum af hveitinu saman við og mjúku smjörinu. Setjið afganginn af hveitinu saman við og hnoðið. Hefist í 30 til 45 mín. Hitið ofninn í 200°c. Hnoðið súkkat, rúsínur og hnetur varlega saman við deigið. Látið hefast í háu smurðu formi í 15 til 20 mín. Penslið með smjöri og bakið í 10 mín. Lækkið hitann í 175°c og penslið aftur. Bakið í 30 til 40 mínútur í viðbót eða þar til brauðið er gullinbrúnt.
Brauð Jólamatur Uppskriftir Mest lesið Aðventukertin Jól Ljóðið um aðventukertin fjögur Jólin Jólasaga: Besta jólagjöfin Jól Jólakaka frá ömmu Jólin Svona gerirðu graflax Jól Ekki byrjuð inni ennþá Jólin Uppskrift að piparkökuhúsi Jólin Pétur Gautur: Ekkert stress á aðfangadagskvöld Jólin Jólalag dagsins: Notalega jólalagið Notalegt með meðlimum GÓSS Jól Jólasveinahúfur föndraðar Jól