Smyglaði ítrekað eiturlyfjum og sterum 29. mars 2011 04:30 Kannabis Maðurinn var einnig ákærður fyrir kannabisræktun á Seltjarnarnesi.
Karlmaður á fimmtugsaldri og kona á þrítugsaldri hafa verið ákærð fyrir stórfellt fíkniefnabrot, auk fleiri brota. Manninum er gefið að sök að hafa 19. nóvember 2009 fjármagnað og staðið að innflutningi á 318 grömmum af kókaíni frá Bandaríkjunum til Íslands um Keflavíkurflugvöll. Efnið var ætlað til söludreifingar í ágóðaskyni. Þegar efnið var komið til landsins drýgði maðurinn hluta þess með íblöndunarefni og hafði í vörslu sinni rúm 482 grömm af kókaíni, að hluta til í sölu- og dreifingarskyni, auk 341 gramms af amfetamíni og 0,5 gramma af tóbaksblönduðu kannabisefni. Konan er ákærð fyrir að hafa verið í vitorði með manninum hvað varðaði vörslu efnanna í sölu- og dreifingarskyni. Þá er maðurinn ákærður fyrir að hafa árið 2008 staðið að innflutningi á 145 grömmum af kókaíni og miklu magni af sterum. Hann faldi kókaínið og steralyfin í ferðatöskum og sendi með fraktflugi frá Amsterdam til Íslands þar sem tollverðir fundu fíkniefnin og steralyfin við leit. Í annað skipti var hann tekinn með stera við komuna frá Hollandi. Þá er hann ákærður um kannabisræktun, ítrekaðan vímuefnaakstur og vörslu fíkniefna.- jss
Fréttir Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent Fleiri fréttir Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Sjá meira