Ríkið stýri nýtingu og kosti rannsóknir 27. apríl 2011 04:45 Orka Orkufyrirtæki eiga að tryggja að nýting jarðhita hafi jákvæð samfélagsleg áhrif, að mati faghóps um sjálfbæra nýtingu jarðvarma.Fréttablaðið/Vilhelm
Ef tryggja á sjálfbæra nýtingu jarðvarma í landinu verður ríkið að tryggja að auðlindastýring sé markviss og skynsamleg og kosta nægilegar rannsóknir svo það sé mögulegt, að því er fram kemur í nýrri skýrslu um sjálfbæra nýtingu jarðvarma. Skýrslan var unnin af faghópi um sjálfbæra nýtingu jarðvarma, sem skipaður var af Orkustofnun og stjórn rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma. Í niðurstöðum hópsins kemur fram að hann telji að aukin vinnsla jarðhita á Íslandi sé ásættanleg, svo framarlega sem gætt sé að ýmsum atriðum. Þau atriði má sjá hér til hliðar. Er meðal annars vísað til framkvæmdaáætlunar svokallaðrar Ríó-yfirlýsingar, þar sem fram kemur að iðnaður skuli frekar byggður upp þar sem völ sé á umhverfisvænum orkugjöfum. Hópurinn leggur í niðurstöðum sínum áherslu á það stjórnsýslulega hlutverk ríkisins að hafa umsjón með því hvernig jarðvarmaauðlindin sé rannsökuð og nýtt. Nægilegar upplýsingar séu forsenda þess að stýring á nýtingu auðlindarinnar sé skynsamleg. Með því að kosta rannsóknir er líklegra að stjórnvöld öðlist þá yfirsýn sem þarf til að tryggja langtímahagsmuni landsmanna í orkumálum, að því er segir í skýrslunni. Að mati faghópsins er heppilegt að leyfisveitingar og stjórnun auðlindarannsókna á vegum ríkisins séu á forræði sömu stofnunar. Með því nýtist yfirsýn og fagþekking. Erfitt getur verið að segja til um nákvæmlega hversu mikla raforku má vinna úr ákveðnu svæði þannig að vinnslan haldist sjálfbær. Ástæðan er sú að vinnslugetan er ekki þekkt við upphaf vinnslu heldur þarf að meta hana samhliða vinnslu, segir í skýrslunni. Þetta þýðir að heppilegast gæti verið að uppbygging vinnslu færi fram í nokkrum þrepum til að tryggja að ekki væri farið yfir mörk sjálfbærni á hverju svæði fyrir sig. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða Spar Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp í hópuppsögnum Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp í hópuppsögnum Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða Spar Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Sjá meira