Viðræður um sölu á eignum Icelandic Group sagðar langt komnar 28. apríl 2011 07:00 Ein þeirra verksmiðja Icelandic Group sem sögð er föl er Pickenpack í Þýskalandi.
Fjölmörg fyrirtæki í alþjóðlegum sjávarútvegi og fjárfestar hafa sýnt áhuga á eignum Icelandic Group. Bank of America Merrill Lynch í Bandaríkjunum hefur verið ráðgjafi um mögulega sölu á hlut í félaginu og eignum þess. Þeim sem áhuga hafa á fyrirtækinu er vísað til bankans, að sögn Péturs Þ. Óskarssonar, talsmanns Framtakssjóðs Íslands, aðaleiganda Icelandic Group. Norski netmiðillinn IntraFish greindi frá því í gær að viðræður um kaup asísku sjávarútvegssamstæðunnar Pacific Andes International á fyrirtækjum og verksmiðjum Icelandic Group í Þýskalandi og Frakklandi séu langt komnar. Verðið er sagt á milli sjötíu til hundrað milljónir evra, allt að sextán milljarðar króna. Evrópski sjóðurinn Triton lagði fram tilboð í erlenda starfsemi Icelandic Group í byrjun árs upp á þrjú hundruð milljónir evra, 48 milljarða króna. Fréttablaðið hafði þá eftir Carl-Evald Bakke-Jacobsen, meðeiganda Triton, að litið væri á Icelandic Group sem grunn að fisksölurisa á heimsvísu. Upp úr viðræðum slitnaði snemma í febrúar. Á sama tíma var tilkynnt að verksmiðjur í Bandaríkjum og rekstur í Kína yrði settur í opið söluferli en verksmiðjum í Evrópu og vörumerki fyrirtækisins haldið. Forstjóri og aðaðstoðarforstjóri Icelandic Group sögðu upp störfum í kjölfarið. Pétur sagði Framtakssjóðinn ekki vilja tjá sig efnislega um orðróm eða einstaka fréttir af félaginu. - jab
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða Spar Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp í hópuppsögnum Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp í hópuppsögnum Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða Spar Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Sjá meira