Bjóða upp á valkosti í heimaþjónustu 4. maí 2011 03:30 Þær Þórunn Bjarney Garðarsdóttir og Ásta Þórarinsdóttir stýra Sinnum heimaþjónustu, sem hefur verið í stöðugum vexti frá stofnun árið 2008. Fréttablaðið/Stefán
Mikill vöxtur hefur verið í starfsemi Sinnum heimaþjónustu frá stofnun fyrirtækisins í upphafi árs 2008. Sinnum þjónustar aldraða, fatlaða og aðra þá sem þurfa á aðstoð að halda í daglegu lífi. Þórunn Bjarney Garðarsdóttir hjúkrunarfræðingur er forstöðukona Sinnum heimaþjónustu og Ásta Þórarinsdóttir er framkvæmdastjóri. Ásta segir í samtali við Markaðinn að viðtökurnar hafi verið afar góðar. Nú þjónusti fyrirtækið, sem telur um 40 starfsmenn, einstaklinga og fjölskyldur á um 200 heimilum á höfuðborgarsvæðinu. Sinnum heimaþjónusta sé bæði með þjónustusamninga við sveitarfélög og einstaklinga auk þess sem aðstandendur kaupi gjarnan þjónustu af fyrirtækinu. „Umsvifin hafa aukist jafnt og þétt frá upphafi en við rekum fyrirtækið samt á varfærinn hátt, því að við viljum geta sinnt vel öllum þeim verkefnum sem koma inn á borð til okkar. Okkar helsta stolt er frábær starfsmannaheild sem hefur mikinn metnað í að veita góða þjónustu.“ Ásta bætir því við að viðtökurnar sýni að brýn þörf sé á þessari þjónustu. Skoðun hennar og Þórunnar sé að einstaklingar eigi að hafa valkosti um hvers konar þjónustu þeir fá og frá hverjum. Það sé eðlilegt að hið opinbera beri kostnað af velferðarþjónustu til aldraðra og fatlaðra en einstaklingarnir sjálfir eigi að ráða því hvaðan þeir fái þjónustuna og hvenær. Þjónustan sem fyrirtækið veiti sé margbreytileg allt frá reglulegum þrifum yfir í sólarhringsþjónustu. „Það er mikið rætt núna um sjálfsákvörðunarrétt aldraðra og sú umræða er löngu tímabær. Okkur finnst mikilvægt að ekki sé verið að neyða ákveðna þjónustu upp á fólk, heldur að það fái að velja hvernig þjónustu það fær, frá hverjum og hvenær dags. Við leggjum mikið upp úr því að þjónustan sé sveigjanleg til að mæta þörfum fólksins.“ Ásta segir starfið sífellt vera að þróast þar sem Sinnum tók til dæmis við rekstri sjúkrahótelsins fyrir stuttu og opnaði samhliða því hvíldardvöl á hótelinu. Hvíldardvölin sé öllum opin, og kynningartilboð verður á þeirri þjónustu í maí. Í júlí verður svo boðið upp á dagþjálfun sem er sérsniðin að þörfum einstaklinga með minnisglöp og hvers kyns heilabilunarsjúkdóma. „Svo er ýmislegt fleira að gerast hjá okkur en þetta starf er allt saman gríðarlega gefandi og skemmtilegt.“ - þj
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða Spar Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp í hópuppsögnum Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp í hópuppsögnum Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða Spar Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Sjá meira