Sendur norðurleiðina með hraði 25. maí 2011 07:00 Jón Elías Gunnlaugsson að störfum í Ölvisholti. Fréttablaðið/Pjetur
Gos hófst í Vatnajökli rétt í þann mund sem tilbúið var nýtt sérbrugg af samnefndum bjór í Ölvisholti í Flóahreppi. „Ég gekk yfir í brugghúsið á laugardagskvöldið að sækja Vatnajökul í könnu og frétti þegar ég kom út að gos væri hafið,“ segir Jón Elías Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri Ölvisholts. Framleiðslan er samstarf Ölvisholts og Ríkis Vatnajökuls, en bjórinn á einvörðungu að fást á börum og í veitingahúsum í nágrenni jökulsins. Jón Elías segist engar áhyggjur hafa af því að gosið setji strik í reikninginn þegar kemur að sölu bjórsins. „Nei, ég er fullur bjartsýni. Ég sendi hann strax austur með hraði, en við urðum að senda hann norður fyrir,“ segir hann. „Það er nú nógu erfitt að fá yfir sig eldgos þó að menn hafi ekki eitthvað almennilegt að drekka.“ Jón segist hins vegar ekkert of spenntur fyrir því að brugga mjög mikið af Vatnajökli, því framleiðslan á honum sé flókin. „Við fáum hingað til okkar flutningabíla með nokkur tonn af jökulís úr Jökulsárlóninu sem við svo bræðum til að fá vatn í framleiðsluna,“ segir hann. Þá segir hann einnig stuðst við séruppskrift og bjórinn því ólíkur öðrum bjór frá fyrirtækinu. Til dæmis sé hann kryddaður með blóðbergi. „Hann er því dálítið sérstakur, en útlendingar eru mjög hrifnir af honum.“- óká
Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Sjá meira