Verðbólgan eykur á vanda Seðlabankans Óli Kristján Ármannsson skrifar 26. maí 2011 00:00 við leifsstöð á Keflavíkurflugvelli Greining Íslandsbanka segir að hækkun flugfargjalda til útlanda, annan mánuðinn í röð, hafi komið á óvart. Nú hafi fargjöld í millilandaflugi hækkað um nærri 50 prósent frá febrúarbyrjun. Fréttablaðið/valli
Tólf mánaða verðbólga stendur nú í 3,4 prósentum, samkvæmt mælingu Hagstofunnar. Hækkun vísitölu neysluverðs frá fyrra mánuði nemur 0,94 prósentum. Verðbólgan er heldur meiri en spáð hafði verið. Greining Íslandsbanka spáði 0,6 prósentum, greiningardeild Arion banka og IFS greining 0,7 prósentum og markaðsvísir MP banka spáði 0,8 prósentum. Í umfjöllun Greiningar Íslandsbanka kemur fram að margt leggist á eitt í verðbólgu mánaðarins. Tíu prósenta hækkun á gjöldum fyrir heitt vatn og frárennsli og 15,5 prósenta hækkun á flugfargjöldum til útlanda vegi þungt, en hækkun flugfargjalda annan mánuðinn í röð hafi komið á óvart. „Sá liður hefur nú hækkað um nærri 50 prósent frá febrúarbyrjun. Þá hækkaði matvara talsvert meira en við höfðum búist við.“ Í markaðsvísi MP banka í gær er sagt að búast megi við áframhaldandi hækkun á tólf mánaða verðbólgu næstu mánuði. Sagt er líklegt að hún fari yfir 4,5 prósent seinni part sumars. Þá segir Greining Íslandsbanka að mælingin viti tæpast á gott fyrir stjórnvöld. „Nýlokið er gerð kjarasamninga þar sem settir voru fyrirvarar um litla verðbólgu næstu misserin. Eru samningarnir uppsegjanlegir ef verðbólga verður ekki undir 2,5 prósenta markmiði Seðlabankans yfir árið 2012.“ Í Markaðspunktum Arion banka segir svo að verðbólguþróunin feli í sér verulegan vanda fyrir Seðlabankann. „Mun Seðlabankinn hækka vexti ofan í þann efnahagsslaka sem er til staðar? Að mati Greiningardeildar er Seðlabankinn hins vegar að kljást við margfalt stærra vandamál (en þann verðbólgukúf sem gengur nú yfir) en það snýr að trúverðugleika peningastefnunnar.“ Seðlabankinn sé enn einu sinni „lentur í því“ að fara inn í verðbólguskeið án nægilegs trúverðugleika. „Í því ástandi hefur vaxtahækkun takmörkuð áhrif á væntingar almennings og markaðsaðila, þar með taldar verðbólguvæntingar. Má því velta fyrir sér hversu mikil (ef einhver) áhrifin yrðu af vaxtahækkun á verðbólgu næstu misserin. Í raun er hægt að færa rök fyrir því að vaxtahækkun yrði til þess fallin að hafa verðbólguhvetjandi áhrif.“ Kjósi peningastefnunefnd Seðlabankans ekki að bregðast fyrr við er næstu vaxtaákvörðunar að vænta hjá Seðlabankanum 15. júní.
Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Sjá meira