Færa sig til Reykjanesbæjar 1. júní 2011 09:00 Stjáni Gunn og Gummi Sig
Veffyrirtækið Kosmos&Kaos opnaði nýjar höfuðstöðvar í Reykjanesbæ á föstudag. Reykjanesbær hefur hingað til ekki verið þekktur fyrir vef- eða hugbúnaðarfyrirtæki en stofnendur Kosmos&Kaos kunna vel við sig á nýjum stað og segja verkefnin hlaðast upp. „Hugmyndin var að búa til skrifstofuhúsnæði sem hentaði vel fyrir skapandi hugsun. Og raunar líka til að fólk spyrji af hverju við erum í Reykjanesbæ,“ segir Kristján Gunnarsson, annar stofnenda Kosmos&Kaos, og bætir við: „Gummi Sig, samstarfsmaður minn, býr hér í Reykjanesbæ. Við vildum líka gera svolítið sérstakt vinnuumhverfi og þar sem leigan er ódýrari hér og handverksmenn til reiðu sem voru tilbúnir í þetta verkefni með okkur þá fannst okkur þetta smellpassa.“ Hönnun skrifstofunnar byggir á hugmynd sem hefur verið kölluð einn-sex og vísar til spýtna sem notaðar eru í mótatimbur. Kristján segir fyrirmyndina vera gistiheimili í Reykjanesbæ sem heitir 1x6. „Fyrst ætluðum við að gera einn vegg í þessum stíl og höfðum samband við þau á gistiheimilinu. Svo vatt þetta upp á sig þannig að öll skrifstofan er að lokum svona; allt úr endurunnum efnum nema lampar, ljós og stólar,“ segir Kristján. Þá er hugleiðsluherbergi á skrifstofunni en Kristján segir alla sem koma inn á hana fyllast af ró og hamingju. Kosmos&Kaos hefur haft í nógu að snúast síðustu vikur og meðal annars hannað nýjar vefsíður fyrir Reykjanesbæ og Vodafone. „Við hófum störf í nóvember og vorum bara tveir en erum núna að ráða starfsmenn. Það er alveg ótrúlega mikið að gera,“ segir Kristján.- mþl
Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Fleiri fréttir „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Sjá meira