Íslenska hagkerfið heldur áfram að rétta úr kútnum 7. júní 2011 07:00 Hagvöxtur á næstu misserum mun byggjast á fjárfestingum. Þar vega boðaðar framkvæmdir í orkufrekum iðnaði þungt. Icesave-atkvæðagreiðslan virðist ekki hafa haft neikvæð áhrif á boðaðar fjárfestingar.Fréttablaðið/GVA
Íslenska hagkerfið er áfram á batavegi og búist er við 2,25 prósenta hagvexti á árinu 2011. Þá eru öll skilyrði fyrir áframhaldandi framgangi samstarfsáætlunar íslenskra stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) uppfyllt. Þetta er mat AGS sem birtist í nýrri starfsmannaskýrslu sjóðsins sem kom út í gær í kjölfar fimmtu endurskoðunar samstarfsáætlunarinnar. „Í grófum dráttum heldur Ísland áfram að rétta úr kútnum. Náðst hefur töluverður árangur við framkvæmd stefnumarkmiða, sérstaklega í sambandi við fjárlagahalla og það að koma fjármálum hins opinbera á sjálfbæra braut,“ segir Julia Kozack, yfirmaður sendinefndar AGS á Íslandi. „Það er jákvætt að gengi íslensku krónunnar er orðið stöðugt og verðbólga lág. Á næstunni eru hins vegar áfram áskoranir til staðar. Má þar nefna framkvæmd áætlunar stjórnvalda um losun gjaldeyrishafta, það að minnka atvinnuleysi og að flýta fyrir endurskipulagningu á skuldum lögaðila. Loks þarf að halda áfram með umbætur á regluverki fjármálakerfisins og eftirliti með því,“ segir Kozack. Í starfsmannaskýrslunni kemur fram að fjárfestingar í orkufrekum iðnaði verði aflvaki hagvaxtar á næstu misserum. Niðurstaða Icesave-atkvæðagreiðslunnar er sögð hafa haft lítil áhrif á boðaðar fjárfestingar, minni en óttast var. Enn er hagvöxtur þó brothættur og eru ýmsir áhættuþættir til staðar sem gætu dregið úr honum. Lykiláskoranir á næstunni eru sagðar vera losun gjaldeyrishafta og það að lækka atvinnuleysi. AGS virðist telja áætlun stjórnvalda um afnám haftanna skynsamlega og sagði Kozack hana ná réttu jafnvægi milli þess að fara of varlega og þess að fara of geyst, í samtali við fréttamenn í gær. „Augljóslega þarf að afnema gjaldeyrishöftin. Vandinn er að gera það þannig að það setji ekki þann stöðugleika sem náðst hefur í uppnám,“ sagði Kozack og bætti því við að það væri rétt nálgun að byggja áætlunina á skilyrðum fremur en á sérstökum dagsetningum. Í skýrslunni segir að atvinnuleysi sé enn allt of hátt þótt stjórnvöld hafi náð árangri með úrræðum sínum fyrir virka atvinnuleitendur. Mikilvægast sé þó að koma hagvexti af stað aftur til að lækka atvinnuleysið merkjanlega. Búist er við því að verðbólga á árinu 2011 verði aðeins hærri en 2,5 prósenta verðbólgumarkmið Seðlabankans. Nýundirritaðir kjarasamningar eru sagðir hafa dregið úr hættunni á miklum launahækkunum í útflutningsgeirum en samt sem áður sé töluverð hætta á því að verðbólga verði meiri en gert hafi verið ráð fyrir. „Ekki ætti að gera lítið úr þeim áskorunum sem eru fram undan fyrir íslenska hagkerfið en það er orðinn til mjög sterkur grunnur fyrir íslenska hagkerfið til að byggja á á næstunni,“ sagði Kozack að lokum í gær.magnusl@frettabladid.is
Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Fleiri fréttir „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Sjá meira