Stefnt að yfirtöku á N1 eftir helgina 10. júní 2011 00:01 við dæluna Engar mannabreytingar eru fyrirhugaðar eftir yfirtöku kröfuhafa á N1, að sögn forstjórans Hermanns Guðmundssonar.Fréttablaðið/Stefán
viðskipti Stefnt er að því að kröfuhafar N1 taki félagið yfir eftir að fjárhagslegri endurskipulagningu lýkur í næstu viku. Kröfuhafar taka bæði yfir móðurfélagið BNT, olíuverslunina N1 og fasteignafélagið Umtak. Stefnan er sett á að skrá fyrirtækið á hlutabréfamarkað eftir um ár. Samkvæmt drögum að samkomulagi sem lá fyrir um endurskipulagninguna í apríl breyta lánardrottnar skuldum N1, fasteignafélagsins Umtaks og móðurfélagsins BNT í hlutafé. Skuldir N1 námu 19,3 milljörðum króna í lok júní í fyrra að viðbættu 9,2 milljarða gjaldföllnu láni BNT sem N1 var í sjálfskuldarábyrgð fyrir. Skuldir BNT og Umtaks eru í erlendum myntum og námu um sextíu milljörðum króna seint á síðasta ári. Við endurskipulagninguna verður eigið fé um fimmtíu prósent og fara skuldir niður í um 8,5 milljarða króna. Það svarar til fjórfalds rekstrarhagnaðar N1. Hermann segir skuldastöðuna hæfilega að endurskipulagningu lokinni. Hann bendir á að erfitt sé að henda reiður á verðmæti N1 nú um stundir. Skýrist það ekki síst af því að eignir Umtaks verða lagðar inn í N1 og verður greitt fyrir með hlutafé. Sömuleiðis verður hluta af skuldum BNT breytt í hlutafé. „Staðan mun væntanlega ekki skýrast fyrr en félagið verður skráð á markað. Þá munu menn sjá hvernig markaðurinn verðmetur fyrirtækið,“ segir Hermann. Horft verður til fyrirhugaðrar skráningar Haga og gengis félagsins á markaði.jonab@frettabladid.is
Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Fleiri fréttir „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Sjá meira