Aukið frelsi veldur meiri skattsvikum 11. júní 2011 08:30 Sviðsstjóri hjá Ríkisskattstjóra segir óheft frelsi og undanþágur í lögum leiða af sér óvenjuleg og oft ólögleg viðskipti, aukið flækjustig og undanskot á sköttum. Mynd/Stefán
aðalsteinn hákonarson Svört atvinna og skipulögð glæpastarfsemi getur þrifist innan félaga á Íslandi án sýnilegra vandkvæða vegna sveigjanleika í félagafrelsi, að mati Aðalsteins Hákonarsonar, sviðsstjóra eftirlitssviðs Ríkisskattstjóra. Hann skrifar grein í nýjasta tölublað fréttablaðs RSK, Tíund. Aðalsteinn segir að þeir sem vinni við skatteftirlit sjái þess merki að aukið frelsi á sumum sviðum atvinnulífsins, minna eftirlit og undanþáguákvæði í lögum leiði af sér vaxandi tilhneigingu til skattasniðgöngu. Það séu ekki smámunir, heldur skipulagður ásetningur sem oftar en ekki sé stór í sniðum. Jafnvel sé um að ræða skipulagða glæpastarfsemi. Undanþágur og aukið frelsi hafi veitt lögbrjótum meira skjól og fleiri dæmi séu nú en áður um að einstaklingar hafi búið til eigin reglur og aðferðir við skattskil í þessu skjóli. Nánast ótakmarkað frelsi til að stofna félög hefur orðið til þess að menn eigi fjölmörg slík og ef einhverju þeirra gengur illa er það skilið eftir í reiðuleysi, eignir þess seldar til annars félags eða teknar í notkun af öðru félagi. Dæmi séu um félög sem hefji viðskipti og semji aldrei ársreikning eða skili skattframtali. „Þegar stjórnvald fer að amast við slíkum félögum þá eru þau yfirgefin eins og sökkvandi skip og nýtt félag stofnað eða tekið í notkun til að halda áfram.“ Þá segir Aðalsteinn að æ algengara sé að félög kaupi eða eignist aflahlutdeild eða aflamark án þess að eiga nokkurt skip. „Oft eru engar upplýsingar um undirliggjandi magn þótt viðskiptin séu upp á hundruð milljóna.“ Einnig sé félögum skipt upp í öllum mögulegum tilgangi, oft til skattahagræðingar. Þá hafi samrunar fyrirtækja farið úr böndunum og gangi út á að búa til veikari einingar en áður. Þessi staðreynd blasi við í hundraðavís í íslensku viðskiptalífi og sé án efa einn af orsakavöldum hrunsins. Hefðbundið skatteftirlit með núverandi mannafla hefur engan möguleika á að ráða við allt sem aflaga fer í skattaumhverfinu, segir Aðalsteinn. Þeir sem valdið hafa mættu leiða hugann að því hvort ekki sé best að lagfæra regluverkið með því að setja inn aukin skilyrði og takmörk, og einnig bæta þau úrræði sem bæði skattyfirvöld og innheimtumenn skatta geta gripið til. „Skattyfirvöld þyrftu einnig úrræði til að bregðast við skipulögðum undanskotum.“ Þau ættu til dæmis að geta fært skyldur félaga með takmarkaða ábyrgð yfir á eigendur þeirra persónulega, ef félögin skila ekki gögnum. thorunn@frettabladid.is
Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Fleiri fréttir „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Sjá meira