Pakkningar minnka en verð helst óbreytt 14. júní 2011 04:30 Toblerone.
Framleiðendur ýmiss konar neytendavöru á alþjóðamarkaði hafa undanfarin misseri tekið á það ráð að minnka innihald neytendapakkninga en halda verði óbreyttu. Þetta kemur fram í frétt breska ríkisútvarpsins BBC, en fjölmargar vörur af þessu tagi eru fluttar inn hingað til lands og hafa því bein áhrif á íslenska neytendur. Til dæmis nefnir BBC að sápustykki hafi minnkað sem og sælgætisstykki. Þannig hafi súkkulaðistykki frá Cadbury's minnkað um 20 grömm og Toblerone hafi minnkað um einn þríhyrning. Fyrirtækin bera við stórhækkuðu hráefnisverði á heimsmörkuðum og þetta sé eina leiðin til að forðast hækkanir, en neytendafrömuðir segja þetta fela í sér hækkun og sé villandi fyrir almenning. Þuríður Hjartardóttir, framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna, segir í samtali við Fréttablaðið að þótt þess háttar mál hafi ekki komið inn á borð samtakanna nýlega, sé ástæða til þess að brýna fyrir neytendum að fylgjast með magneiningaverði. „Þegar fólk er að bera saman verð almennt, skiptir máli að bera saman verð í samræmi við magn, til dæmis lítraverð eða kílóverð frekar en stykkjaverð." Finnur Geirsson, forstjóri sælgætisgerðarinnar Nóa Siríus, segir svona nokkuð ekki hafa viðgengist hjá sínu fyrirtæki þó vissulega hafi hráefni hækkað í verði. Framleiðendur erlendis séu eflaust að bregðast við þeirri þróun. „Við höfum verið að samræma okkar pakkningastærðir, en það hefur verið til að auka hagkvæmni í framleiðslu, en ekki verið í þeim tilgangi að hækka útsöluverð miðað við magn."- þj
Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Fleiri fréttir „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Sjá meira