Gæti þýtt 29 milljarða kröfu 30. júní 2011 06:15
Úrskurður ESA, eftirlitsstofnunar EFTA, um að aðstoðarkerfi fasteignaveðlána Íbúðalánasjóðs feli í sér ólögmæta ríkisaðstoð, gæti þýtt kröfu á þrotabú fjögurra sparisjóða upp á 29 milljarða króna. ESA úrskurðaði í gær að kerfið væri ekki í samræmi við ákvæði EES-samningsins og fór fram á að yfirvöld legðu það þegar í stað niður „og geri nauðsynlegar ráðstafanir til að endurheimta ósamrýmanlega aðstoð eigi síðar en í lok október 2011“. Þó segir í úrskurðinum að einstaka styrkir gætu samrýmst EES-samningnum og þurfi því ekki að endurheimta. Krafan gæti því orðið mun lægri. Með neyðarlögunum sem sett voru 6. október 2008 var Íbúðalánasjóði heimilað að kaupa skuldabréf fjármálafyrirtækja með veði í íbúðarhúsnæði. Fjórir sparisjóðir nýttu sér ákvæðið; Byr, Sparisjóður Keflavíkur, Sparisjóður Bolungarvíkur og Spron. Kaup Íbúðalánasjóðs námu um 29 milljörðum. Í öllum tilfellum er um að ræða lánasöfn sparisjóða sem komnir eru í slitameðferð. Samtals eru lánin rúmlega 7.600. Ríkissjóður veitti 33 milljarða króna aukalega til Íbúðalánasjóðs árið 2010. Gunnhildur Gunnarsdóttir, sviðsstjóri lögfræðisviðs Íbúðalánasjóðs, segir gagnrýni ESA lúta að því að á þessum tíma hafi verið ólíklegt að aðili á markaði myndi kaupa lánasöfn með þessum hætti. Því geti falist ríkisaðstoð í kaupunum. Þá gagnrýni ESA að heimildin hafi verið ótímabundin og opin en ekki bundin við vissar fjárhæðir. Íbúðalánasjóður mun funda með fulltrúum fjármála- og velferðarráðuneytis í dag og fara yfir næstu skref í málinu.- kóp
Mest lesið Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Fleiri fréttir Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Sjá meira