Flotinn í makríl við Suðurland 30. júní 2011 06:00 Þorsteinn ÞH að landa makríl í júní í fyrra. Veiðarnar hafa þróast öðruvísi en í fyrra vegna veðurs. Mynd/Óskar
Flest íslensku uppsjávarveiðiskipin eru nú að makrílveiðum við suðausturströndina en þar hefur verið ágætis kropp að undanförnu. Rólegt var yfir veiðunum í gær, að sögn Guðlaugs Jónssonar, skipstjóra á Ingunni AK, en hann vonast til þess að aflinn glæðist með hækkandi sjávarhita. Greint er frá á heimasíðu HB Granda. Skipin eru á veiðum um 35 mílur út af Ingólfshöfða. Þar veiðist nánast hreinn makríll en aflinn hefur verið aðeins blandaðari hjá þeim sem reynt hafa fyrir sér á dýpra vatni. Að sögn Guðlaugs er hitastig sjávar enn mjög lágt, þótt það fari hægt hlýnandi. Það er vetrartíð á miðunum norðaustur af landinu og þar verður væntanlega enga síld eða makríl að finna fyrr en sjórinn hlýnar. Lundey NS fór í leiðangur um þetta hafsvæði á dögunum og þar var ekkert líf. Makríllinn virðist því halda sig sunnan við landið þar sem sjórinn er heldur hlýrri. „Makríllinn, sem við höfum verið að veiða, er stór og góður en það mætti vera meira af honum en raunin er í dag,“ segir Guðlaugur. - shá
Mest lesið Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Fleiri fréttir Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Sjá meira