Samherjafrændi fær Björgun 1. júlí 2011 07:00 Þorsteinn vilhelmsson
Dótturfélag Landsbankans hefur selt fyrirtækið Björgun til hóps fjárfesta fyrir 306 milljónir króna. Einn kaupenda er Þorsteinn Vilhelmsson, fyrrverandi stjórnarformaður Atorku Group sem átti fyrirtækið áður. Björgun sérhæfir sig meðal annars í hafnardýpkun. Kröfuhafar Atorku Group tóku félagið yfir í byrjun síðasta árs. Þorsteinn var stærsti hluthafi Atorku bæði í eigin nafni og gegnum fjögur einkahlutafélög með samtals um 28,3 prósenta hlut. Björgun heyrði undir skilanefnd gamla Landsbankans en fór yfir til þess nýja með tilfærslu eigna og skulda á milli bankanna undir lok árs 2009. Félög Þorsteins sem hlut áttu í Atorku Group voru tekin til gjaldþrotaskipta í fyrravor. Heildarkröfur námu 7,3 milljörðum og var Landsbankinn helsti kröfuhafinn. Fjölmiðlar greindu frá því fyrir um ári að svo kynni að fara að skilanefnd Landsbankans þyrfti að afskrifa sex milljarða króna vegna lána til Þorsteins. Samkvæmt upplýsingum frá skilanefnd Landsbankans fóru skuldbindingar Þorsteins gagnvart Landsbankanum yfir í nýja bankann við eignatilfærsluna. Ekki liggur fyrir hvort salan á Björgun er liður í skuldauppgjöri bankans við Þorstein né hversu stóran hlut hann kaupir í Björgun. Athygli vekur að Þorsteinn kaupir sinn hlut í nafni einkahlutafélagsins Harðbaks. Félagið átti rúmlega níu prósenta hlut í Atorku Group. Á stjórnarfundi félagsins í ágúst 2009 var nafni þess breytt í 9. júní 1999 ehf. Félagið varð gjaldþrota í fyrravor. Tæpum mánuði eftir nafnbreytinguna blés Þorsteinn nýju lífi í Harðbak undir nýrri kennitölu. Skuldir hins nýja félags námu rúmum tveimur milljónum króna. Samkvæmt upplýsingum frá Landsbankanum seldi fyrirtækjaráðgjöf bankans Björgun í opnu söluferli og voru skuldbindandi tilboð metin meðal annars eftir fjárfestingargetu bjóðenda. Ekki náðist í Þorstein þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. - jab
Mest lesið Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Fleiri fréttir Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Sjá meira