Rétt að sporna við verðbólgu 2. júlí 2011 07:30 Julie Kozack. AGS segir endurreisnarstarfið hér hafa gengið vel eftir efnahagshrunið. Mynd/Vilhelm
Efnahagslífið hér er að taka við sér og má búast við að fjárfestingar og aukin einkaneysla muni skila því að hagvöxtur verði 2,5 prósent á árinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (AGS) í gær. Sendinefnd sjóðsins kom til landsins 21. júní síðastliðinn í tengslum við sjöttu og síðustu endurskoðun efnahagsáætlunar stjórnvalda og AGS. Nefndin lauk störfum í gær og er búist við að síðasta endurskoðunin verði samþykkt í ágúst. Í tilkynningunni er haft eftir Julie Kozack, formanni sendinefndarinnar, að endurreisnarstarfið gangi vel, fjármálageirinn sé að komast á fætur. Eftirlit með honum hafi verið hert til muna. Það sé mikilvægt bæði til að draga úr áhættu innan geirans og styrkja hann. Þá er jákvætt hve fjárhagsleg endurskipulagning heimila og fyrirtækja hefur gengið vel, að hennar sögn. Þá segir Kozack að þótt mat AGS á aðstæðum efnahagslífsins sé í meginatriðum óbreytt frá fimmtu endurskoðuninni í maí þá sé verðbólga ívið hærri en þá hafi verið búist við. Helsta skýringin er líkt og bent hefur verið á síðustu daga, gengislækkun krónunnar ofan á hækkun launa, fasteignaverðs og vöruverðs. Við þær aðstæður sé skynsamlegt að Seðlabankinn herði tökin á peningalegu aðhaldi, að mati AGS. - jab
Mest lesið Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Fleiri fréttir Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Sjá meira