Landsbankinn vill ekki taka Olís yfir 8. júlí 2011 06:30 Olís komst í hendur nýrra eigenda um mitt ár 2003. Landsbankinn lánaði þeim 5,5 milljarða til kaupanna. Lánið var í erlendri mynt og hefur stökkbreyst síðan þá. Mynd/Vilhelm
Unnið er að endurskipulagningu skulda eigenda olíuverslunarinnar Olís við Landsbankann. Bankinn hefur ekki í hyggju að ganga að veðum og taka fyrirtækið yfir. Þeir Einar Benediktsson, framkvæmdastjóri Olís, og Gísli Baldur Garðarsson stjórnarformaður keyptu Olís í gegnum einkahlutafélagið FAD 1830 um mitt ár 2003. Félagið var þá skráð á hlutabréfamarkað. Eftir viðskiptin var það afskráð. Félag þeirra Einars og Gísla fékk 5,5 milljarða króna í erlendri mynt að láni hjá Landsbankanum og var reksturinn lagður að veði. Skuldir hafa hækkað mikið í gengishruninu. Viðræður, sem munu skammt á veg komnar, snúa að því að breyta erlendum skuldum eigenda félagsins í krónur og hlíta dómi Hæstaréttar um vaxtaútreikninga. Lánið var upphaflega myntkörfulán til tveggja ára, það var með framlengingarheimild um fjögur ár til viðbótar og því á gjalddaga árið 2009. Samkvæmt ársreikningi 2007 hefur gjalddaginn verið framlengdur fram yfir næsta ár. Athygli vekur að eigendur Olís greiddu sér samanlagt 3,4 milljarða króna í arð á árunum 2004 til 2009. Á sama tíma nam uppsafnað tap fyrirtækisins rúmum 1,1 milljarði króna. Arðgreiðslur til FAD 1830 fyrir uppgjörsárið 2003 voru tæplega tvöfalt meiri en hagnaðurinn á sama tíma, tæpir 1,3 milljarðar króna. Þetta var fjórða hæsta arðgreiðslan sem fyrirtæki á Íslandi greiddi út árið 2004, að því er fram kemur í Rannsóknarskýrslu Alþingis. Þá rann allur hagnaður næstu tveggja ára í vasa eigenda. Arður var ekki greiddur út á árunum 2007 og 2009. Á sama tíma og Olís tapaði tæpum sex milljörðum árið 2008 námu arðgreiðslur hins vegar 625 milljónum króna. Erfitt er að átta sig á stöðu FAD 1830, þar sem félagið hefur aðeins birt þrjá ársreikninga, fyrir árin 2003, 2006 og 2007. Greiddar hafa verið út í arð samtals 250 milljónir króna til eigenda FAD 1830. Fram kom í bréfi frá Einari Benediktssyni, framkvæmdastjóra Olís, og lögmanninum Gísla Baldri Garðarssyni, til starfsmanna fyrirtækisins í síðustu viku að þeir hafi nýtt arðgreiðslurnar frá Olís til að greiða niður skuldir FAD 1830. jonab@frettabladid.is
Mest lesið Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Sjá meira