Segir lambakjötsbirgðir duga út sumarið 19. júlí 2011 06:00 Sauðfjárbændur segja birgðir duga fram að næstu slátrun, sem sé fín nýting. Mynd/Vilhelm
Það er ekki rétt að skortur sé á lambakjöti hér á landi, segir formaður Landssamtaka sauðfjárbænda, Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson. Leifur Þórsson, framkvæmdastjóri hjá Ferskum kjötvörum, sagði í fréttum Ríkisútvarpsins í gær að skortur væri á lambakjöti á Íslandi. Hann hefur óskað eftir því við landbúnaðarráðuneytið að fá leyfi til innflutnings á lambalærum. „Birgðastaðan 1. júlí var 1100 tonn, og síðustu ár hefur salan þessa sumarmánuði verið í kringum 500 tonn á mánuði. Það eru tveir mánuðir, júlí og ágúst, þangað til ný sláturtíð hefst,“ segir Sigurgeir Sindri. Hann segir að mögulegt sé að minna sé til af ákveðnum bitum en öðrum. „Ég er svo jákvæður fyrir því að við förum inn í nýja sláturtíð með nánast tómar geymslur, mér finnst það bara frábært nýting. Það hafa oft verið sögur um kjötfjöll sem hafi verið sturtað á haugana.“ Um fjörutíu prósent af íslensku lambakjöti eru flutt úr landi. Sigurgeir Sindri segir að þótt sala erlendis gangi vel sé innanlandsmarkaðurinn í forgangi. „Innanlandsmarkaður er okkar besti markaður, hefur alltaf verið og mun alltaf verða. Við bændur verðum mjög óánægðir ef það er kjötlaust á Íslandi. Við erum hérna til að sinna íslenskum neytendum fyrst og fremst.“ Ekki náðist í Leif Þórsson, framkvæmdastjóra Ferskra kjötvara, í gær. - þeb
Mest lesið Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Tvíburar ráðnir til BPO innheimtu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Sjá meira