Tap útgáfufélags snýst í hagnað á milli ára 4. ágúst 2011 08:15 Ari Edwald
Hagnaður 365 miðla, útgáfufélags Fréttablaðsins, árið 2010 var 360 milljónir króna eftir skatta og handbært fé frá rekstri 1.106 milljónir. Eigið fé var rúmir tveir milljarðar um áramót. Eru þetta upplýsingar úr ársreikningi 365 miðla ehf. fyrir árið 2010. Heildarvelta félagsins nam 8.550 milljónum króna síðasta ár og var EBITDA-hagnaður 1.004 milljónir króna. Er það um 25 prósentum meiri hagnaður en árið 2009. Þá nam EBITDA-hagnaðurinn 808 milljónum króna og tapið eftir skatta var 344 milljónir. Ari Edwald, forstjóri 365 miðla, segir útkomuna ánægjulega, sér í lagi í ljósi þess að félagið hafi náð að snúa tapi í hagnað á milli ára. „Það er sérstaklega ánægjulegt miðað við þær aðstæður sem hafa verið,“ segir Ari. „Við erum bæði búin að vera að glíma við skuldir og háan rekstrarkostnað en það er hlutur sem hefur breyst mikið á milli ára.“ Ari segir félagið vera á réttri leið í sínum rekstri og sú þróun hafi haldið áfram á þessu ári. Allir miðlar undir hatti 365 hafi styrkt stöðu sína á markaðnum. Fjárhagsstaðan hafi styrkst verulega. Í lok mars í fyrra hafi hlutafé verið aukið um milljarð króna og því fé hafi að mestu leyti verið ráðstafað til niðurgreiðslu skulda. Jafnframt hafi náðst samningar við viðskiptabanka 365 miðla um endurfjármögnun á öllum lánum félagsins. Gert sé ráð fyrir að lánin verði greidd hratt niður á næstu árum. Fjármagnskostnaður hafi þegar lækkað verulega vegna þessa og betri vaxtakjara. Ingibjörg S. Pálmadóttir á 90 prósent af A-hlutabréfum 365 miðla ehf. og öll B-hlutabréf, sem ekki fylgir atkvæðisréttur í félaginu en þau eru fimmtungur hlutafjár. Ari Edwald á sex prósenta hlut af A-hlutabréfum og fimmtán aðrir hluthafar eiga fjögur prósent. - sv
Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Tvíburar ráðnir til BPO innheimtu Viðskipti innlent „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Sjá meira