Mikill áhugi á orku frá Þeistareykjum 15. ágúst 2011 07:00 Húsavík
Norðurþingi hefur borist ósk um viðræður um úthlutun á 20 hektara lóð á Bakka til fyrirtækisins Thorsil. Thorsil hefur hug á að reisa kísilmálmverksmiðju á Íslandi í samvinnu við kanadíska fyrirtækið Timminco. „Við erum ekki búin að gera raforkukaupasamning en erum að reyna að tryggja okkur lóðina ef okkur tækist að fá orku þarna,“ segir Hákon Björnsson, framkvæmdastjóri Thorsil. Fyrirtækið beinir nú sjónum sínum að orku frá Þeistareykjum en hefur áður skoðað möguleika á að reisa verksmiðju við Þorlákshöfn og á Grundartanga.Bergur Elías Ágústsson, sveitarstjóri Norðurþings, segir ánægjulegt að áhugi sé fyrir uppbyggingu á svæðinu. „Við erum með PCC, við höfum átt frábært samstarf við Alcoa og núna sækir Thorsil um. Við tökum þeim bara eins og öðrum sem leitað hafa til okkar; með jákvæðu hugarfari. Við vonum bara að störfin og framkvæmdirnar fari að tikka, Þingeyingum og þjóð til heilla,“ segir Bergur Elías. Fregnir bárust af því fyrr á árinu að þýska fyrirtækið PCC hefði sýnt áhuga á að reisa kísilmálmverksmiðju á Bakka. Verkefnið er þó enn á viðræðustigi. Þá hefur Alcoa lengi haft áhuga á að reisa þar álver. Bergur segir íbúa á svæðinu orðna langeyga eftir framkvæmdum. „Frá árinu 1998 höfum við haft eitt markmið. Og það er að búa til 600 til 800 störf í Þingeyjarsýslum. Ef að við gerum það með álveri þá er það flott, ef það er eitthvað annað þá er það fínt,“ segir Bergur og bætir við að allt sé í raun klárt, það þurfi bara að ganga frá samningum við orkukaupanda.- mþl
Mest lesið Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Tvíburar ráðnir til BPO innheimtu Viðskipti innlent Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Sjá meira