Vilja flytja út íslenska tómata 18. ágúst 2011 05:30 Tómaturinn barst til Evrópu með Spánverjum á 15. og 16. öld frá Suður Ameríku en tækninni hefur fleygt svo fram að nú sjá menn tækifæri í því að rækta þá á Íslandi og flytja út til Bretlands. Þessi tegund sem hér sést er kölluð kirsuberjatómatar.
Fyrirtækið Geogreenhouse áformar að hefja útflutning á tómötum og miðast hugmyndirnar við að fyrsta sending fari utan í september á næsta ári. Að öllu óbreyttu yrði það þá fyrsta fyrirtækið til að flytja út grænmeti frá Íslandi. Nú þegar hafa náðst samningar við breskt fyrirtæki um markaðssetningu, pökkun og dreifingu tómatana. Gangi áformin eftir verða tómatarnir meðal annars til sölu hjá stórmarkaðakeðjunni Marks og Spencer. Tómatarnir verða ræktaðir í sérstökum hátæknigróðurhúsum sem verða reist í þremur þrepum, en að því loknu munu um 150 manns starfa hjá fyrirtækinu. Áformað er að hefja framkvæmdir næsta vor og í fyrsta áfanga verður reist 3,3 hektara gróðurhús sem 35 manns munu starfa við. Tveimur árum seinna verður það stækkað upp í 10 hektara og þá yrði starfsmannafjöldinn kominn upp í tæplega hundrað manns. Ekki hefur verið ákveðið hvenær lokaáfanganum lýkur en þá eiga gróðurhúsin að vera orðin 20 hektarar og eins og fyrr segir munu þá um 150 manns starfa hjá fyrirtækinu. Tómatarnir verða fluttir með skipi til Immingham í Englandi. Sigurður Kiernan, stjórnarformaður Geogreenhouse, segir að verið sé að vinna í samningi við orkufyrirtæki en gróðurhúsið verði staðsett við jarðvarmavirkjun. Hann kveðst ekki geta sagt nánar til um staðsetningu fyrir gróðurhúsið en Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að rætt hafi verið við bæjaryfirvöld á Reykjanesi um að reisa það þar. Sigurður telur þessa vöru hafa ýmsa kosti fram yfir þær sem framleiddar eru víðast hvar erlendis. „Við höfum þann kost á Íslandi að geta notað besta vatn í heimi við ræktunina á meðan Bretar, Hollendingar og fleiri eru að nota iðnaðarvatn í sína framleiðslu,“ segir hann. „Við notum ekki heldur skordýraeitur eins og gert er víðast hvar erlendis og það gefur vörunni ákveðinn gæðastimpil. Svo er þetta umhverfisvænt því við erum ekki að brenna gas til að hita gróðurhúsin heldur notum við jarðvarma.“ Jarðvarmavirkjun mun sjá gróðurhúsinu fyrir heitu vatni, rafmagni, vatni til að vökva og koltvísýringi. Honum verður hleypt inn í gróðurhúsið til að örva vöxt. Með svokölluðum aðlögunarsamningi frá árinu 2002 var íslenskum framleiðendum gert kleift að flytja út grænmeti. Að sögn Bjarna Jónssonar, framkvæmdastjóra Sambands garðyrkjubænda, hefur þó enginn hafið útflutning enn. „Reyndar hafa verið gerðar tilraunir á útflutningi á rófum og kartöflum til Færeyja en annars hefur enginn hafið útflutning sem einhverju nemur,“ segir hann. - jse
Mest lesið Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf Tvíburar ráðnir til BPO innheimtu Viðskipti innlent Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Sjá meira