Lífið

Baltasar þriðji í skíðakeppni í Frakklandi

Í góðum félagsskap Baltasar gerir sig kláran fyrir skíðakeppnina í frönsku Ölpunum, en hann hafnaði í þriðja sæti í stórsviginu, var aðeins sekúndubrotum frá fyrsta sætinu.
mynd/pidz
Í góðum félagsskap Baltasar gerir sig kláran fyrir skíðakeppnina í frönsku Ölpunum, en hann hafnaði í þriðja sæti í stórsviginu, var aðeins sekúndubrotum frá fyrsta sætinu. mynd/pidz
Baltasar Kormákur hafnaði í þriðja sæti í skíðakeppni kvikmyndaframleiðenda, leikstjóra og annarra kvikmyndamógúla sem haldin var í tengslum við Les Arcs-kvikmyndahátíðina, en Baltasar var þar að kynna kvikmynd sína, Djúpið. Leikstjórinn þykir liðtækur skíðakappi en mátti lúta í lægra haldi fyrir sér reyndari köppum, þeim Denis Antoine og Grégory Faes.

„Ég var bara nokkrum sekúndubrotum frá fyrsta sætinu. Ég var á sömu sekúndunni,“ segir Baltasar í samtali við Fréttablaðið, en hann var þá nýkominn heim til Íslands. Hann segir keppnina hafa verið harða, en leikstjórinn náði tímanum 34,8 sekúndur í stórsvigi. „Stóru mistökin voru auðvitað að vera á svigskíðum en ekki stórsvigsskíðum, þau drógu úr hraðanum.“

Les Arcs í Savoie er eitt besta skíðasvæði Evrópu og þar renndu Baltasar og eiginkona hans, Lilja Pálmadóttir, sér niður snæviþaktar hlíðarnar milli þess sem leikstjórinn kynnti Djúpið. Allir þátttakendur í skíðakeppninni voru leystir út með gjöfum, fengu boli, húfur, vettlinga og flösku af einum þekktasta drykk héraðsins, Chartreuse.

Baltasar á sér reyndar fortíð úr skíðaheiminum, hann æfði skíðaíþróttina af kappi með Breiðabliki þegar hann var yngri. „En svo lagði ég skíðin á hilluna og renndi mér ekki í fimmtán ár.“ Baltasar er nú á leiðinni til New York, þar sem hann mun taka þátt í viðtölum með Mark Wahlberg í kringum kynningar á kvikmyndinni Contraband, en hún verður frumsýnd eftir tæpan mánuð. - fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.