Bessastaðakökur 1. nóvember 2011 00:01
250 g smjör (ekki smjörlíki) 250 g (3 dl) flórsykur 250 g (5 dl) hveiti 1 eggjarauða nokkrir val- eða pecanhnetukjarnar 1. Bræðið smjörið við hægan hita, látið síðan storkna. Takið smjörskjöldinn ofan af en fleygið syrjunni (botnfallinu), skafið það af sem er laust neðan á smjörskildinum. 2. Setjið hveiti og flórsykur í skál, hnoðið smjörið saman við. 3. Fletjið út sm á þykkt, skerið síðan undan kringlóttu litlu glasi, þvermál um 4 sm. Einnig má búa til rúllu úr deiginu og skera í sm þykkar sneiðar. 4. Setjið smádropa af eggjarauðu ofan á hverja köku, leggið bita af val- eða pecanhnetukjarna á hann. 5. Hitið bakaraofn í 180 C, blástursofn í 170 C, setjið í miðjan ofninn og bakið í um 15 mínútur. Kökurnar eiga ekki að taka lit, þær eiga að vera alveg hvítar.
Jólamatur Smákökur Uppskriftir Mest lesið Fjórar ljúffengar uppskriftir að meðlæti Jól Skinkuþjófar ógna áströlskum jólum Jól Jóladagatal Hurðaskellis og Skjóðu - 2. desember Jól Eitt deig – þrenns konar smákökur Jól Niður með jólaljósin Jól Marsipan-nougat smákökur Jól Jólagesturinn Jól Hakkabuff með eggi á jólunum Jól Jólaklukkur Jól Sálmur 93 - Í upphafi var orðið fyrst Jól