Þórsarar unnu ÍR-inga í fjórða sinn í vetur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. janúar 2012 20:54 Benedikt Guðmundsson og félagar hafa gott tak á ÍR-liðinu. Mynd/Hjalti Vignisson
Þórsarar úr Þorlákshöfn unnu tólf stiga sigur á ÍR, 88-76, í leik liðanna í 13. umferð Iceland Express deildar karla í körfubolta sem fram fór í Icelandic Glacial höllinni í Þorlákshöfn í kvöld. Þetta var fjórði sigur Þórsliðsins á ÍR í vetur en liðið vann með níu stigum í fyrri leiknum í Seljaskólanum og síðan báða leiki liðanna í Lengjubikarnum. Blagoj Janev skoraði 27 stig fyrir Þór, Darri Hilmarsson var með x19 stig og Matthew Hairston skoraði 16 stig og tók 16 fráköst. Nemanja Sovic skoraði 19 stig fyrir ÍR, James Bartolotta var með 15 stig og Hjalti Friðriksson skoraði 12 stig og tók 12 fráköst. Þórsarar byrjuðu aðeins betur og voru 13-8 yfir eftir fimm mínútna leik en ÍR-ingar voru ekki langt undan og voru komnir með þriggja stiga forskot, 20-17, við lok fyrsta leikhlutans. Þórsarar voru sterkari í upphafi annars leikhluta með Matthew Hairston í fararbroddi. Þór vann leikhlutann 32-26 og var þremur stigum yfir í hálfleik, 49-46. Hairston var með 14 stig og 8 fráköst í leikhlutanum. Þórsarar bættu við forskot sitt í þriðja leikhlutanum og voru komnir með tólf stiga forskot, 70-58, þegar rúmar tvær mínútur voru eftir. ÍR-iungar enduðu leikhlutann hinsvegar á 6-0 spretti og munurinn var bara sex stig, 70-64, fyrir lokaleikhlutann. Þórsarar héldu haus, juku aftur muninn og lönduðu nokkuð sannfærandi sigri í fjórða leikhlutanum.Þór Þorlákshöfn-ÍR 88-76 (17-20, 32-26, 21-18, 18-12)Þór Þorlákshöfn: Blagoj Janev 27/5 fráköst, Darri Hilmarsson 19/5 fráköst, Matthew James Hairston 16/16 fráköst, Darrin Govens 12/5 fráköst, Baldur Þór Ragnarsson 8, Guðmundur Jónsson 3, Emil Karel Einarsson 2, Þorsteinn Már Ragnarsson 1.ÍR: Nemanja Sovic 19, James Bartolotta 15, Hjalti Friðriksson 12/12 fráköst, Þorvaldur Hauksson 8, Ellert Arnarson 7/5 stoðsendingar, Kristinn Jónasson 7/5 fráköst, Níels Dungal 4/4 fráköst, Eiríkur Önundarson 2, Húni Húnfjörð 2/4 fráköst.
Dominos-deild karla Mest lesið „Ég væri dáinn ef hún væri ekki hér“ Enski boltinn Leysti frá skjóðunni um hvað gerðist í þriðja hring Sport Helenu nóg boðið: „Ætlum við í alvöru að leyfa þessu að gerast?“ Körfubolti Synir Emile Heskey spiluðu saman í fyrsta sinn fyrir City Enski boltinn Stjörnustjarfur þegar hann sá Zola á Ryder bikarnum Golf Velskur slagur og meistarar mætast í sextán liða úrslitum Enski boltinn Hvergi nærri hætt: „Markmiðið var alltaf að sýna gömlu góðu Berglindi“ Íslenski boltinn Stífla Álvarez brast í dramatískum sigri Atlético Fótbolti Ásdís átti stórleik í stórsigri Vals Handbolti Dagskráin: Íslendingaslagur í Evrópu, spennan magnast í Bestu og hitað upp fyrir Ryder bikarinn Sport Fleiri fréttir Helenu nóg boðið: „Ætlum við í alvöru að leyfa þessu að gerast?“ Formaður dómaranefndar KKÍ tjáir sig ekki Um þögnina varðandi dómaramál KKÍ: „Þurfum að komast til botns í þessu“ Áfall fyrir Houston Forráðamenn KKÍ neita að tjá sig um dómaramálin Fannst skilaboðin frá dómaranefnd galin Mynd af ellefu ára leikmanni Real vekur athygli Davíð hættur: „Dreginn á asnaeyrunum“ Skömmuðust sín fyrir tap gegn Fjallinu: „Hann var ekki svona stór þá“ Anthony Davis byrjaður að æfa á ný Ólöf Helga tekur við stjórninni: „Orðnar mjög spenntar fyrir fyrsta þætti“ NBA Evrópudeildin muni hefjast eftir tvö ár Tryggvi varði flest skot á EM og tók næstflest fráköst Þjóðverjar Evrópumeistarar í annað sinn Grikkir stálheppnir að landa bronsinu Tyrkir pökkuðu Giannis og Grikkjum saman á leið í úrslit „Að spila á Íslandi er frábært tækifæri fyrir mig“ Þjóðverjar í úrslit EM í fyrsta sinn í tuttugu ár Bertone á leið í Stjörnuna en byrjar í fimm leikja banni Annar fyrrverandi leikmaður Sacramento Kings til Álftaness Telur ólíklegt að Kawhi eða Clippers verði refsað Slóvenar saltvondir út í dómarana: „Hvað er hægt að segja?“ Þjóðverjar í undanúrslit þrátt fyrir stórleik Doncic Álftanes mætir stórliði Benfica Finnar afgreiddu Georgíu með stæl Grikkland í undanúrslit á EM Tyrkir hentu Íslandsbönunum úr leik Njarðvíkingar semja við öðruvísi Kana Ísraelar númeri of litlir fyrir Grikki Slóvenar sluppu með skrekkinn gegn Ítölum Sjá meira
Dagskráin: Íslendingaslagur í Evrópu, spennan magnast í Bestu og hitað upp fyrir Ryder bikarinn Sport
Dagskráin: Íslendingaslagur í Evrópu, spennan magnast í Bestu og hitað upp fyrir Ryder bikarinn Sport