Lyf og heilsa greiði 100 milljóna sekt Jón Hákon Halldórsson skrifar 29. febrúar 2012 20:22
Héraðsdómur Reykjavíkur staðfesti í dag úrskurð áfrýjunarnefndar samkeppnismála að Lyf og heilsa skyldi greiða 100 milljónir króna í sekt vegna misnotkunar á markaðsráðandi stöðu gagnvart Apóteki Vesturlands. Þetta kemur fram á vefsíðu Samkeppniseftirlitsins. Samkeppniseftirlitið hóf rannsókn á ætluðum brotum Lyfja og heilsu með húsleit í september 2007. Rannsóknin hófst í kjölfar ábendinga um að fyrirtækið hefði gripið til aðgerða til að hindra að Apótek Vesturlands, sem þá var nýstofnað, næði að hasla sér völl á Akranesi. Árið 2010 komst Samkeppniseftirlitið að þeirri niðurstöðu að Lyf og heilsa hefðu misnotað markaðsráðandi stöðu sína með skipulagðri atlögu gegn Apóteki Vesturlands sem beinlínis hafði það að markmiði að raska samkeppni. Fólust aðgerðir Lyfja og heilsu annars vegar í stofnun svonefnds vildarklúbbs sem var ætlað að tryggja að mikilvægir viðskiptavinir myndu ekki hefja viðskipti við Apótek Vesturlands. Hins vegar fólust aðgerðirnar í verulegum afsláttum á mikilvægum lyfjum og voru þeir aðeins í boði á Akranesi, að mati Samkeppniseftirlitsins. Lyf og heilsa skaut málinu til úrskurðarnefndar um samkeppnismál sem lækkaði stjórnvaldssektina sem Samkeppniseftirlitið hafði lagt á úr 130 milljónum í 100 milljónir. Héraðsdómur staðfesti þá niðurstöðu í dag.
Mest lesið „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Daði Már kennir olíufélögunum um Viðskipti innlent Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Viðskipti erlent Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Viðskipti innlent Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira