Vilja kaupa sorpeyðingarstöð á Suðurnesjum fyrir 1250 milljónir 29. febrúar 2012 16:09 Sorpeyðingarstöðin Kalka.
Bandaríska fyrirtækið Triumvirate Environmental hefur lýst sig reiðubúið til að greiða allt að 10 milljónum bandaríkjadala eða jafnvirði um 1.250 milljóna íslenskra króna fyrir eignir Sorpeyðingastöðvar Suðurnesja en skuldir Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja í dag nema um 950 milljónum króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sorpeyðingarstöðinni. Sorpbrennslustöðin Kalka var sett í söluferli fyrir u.þ.b. tveimur árum og þá bárust tvö tilboð í stöðina en hvorugt þeirra reyndist ásættanlegt eða aðgengilegt. Á fundi með fulltrúum eigenda Kölku síðast liðinn föstudag kynntu forsvarsmenn Triumvirate Environmental viljayfirlýsingu sína og áhuga um kaup á sorpbrennslustöðinni en fyrirtækið hyggst nýta stöðina til að brenna úrgangi frá dótturfélagi sínu í Kanada sem fellur innan þess starfsleyfis sem stöðin hefur. Á kynningarfundinum s.l. föstudag var ákveðið að vísa erindinu til umfjöllunar og ákvörðunar sveitarfélaganna sem eiga Sorpeyðingarstöð Suðurnesja. Þetta mál er enn á frumstigi og engar frekari upplýsingar fyrirliggjandi um það fyrr en viðkomandi sveitarstjórnir hafa lokið umfjöllun sinni.
Mest lesið „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Daði Már kennir olíufélögunum um Viðskipti innlent Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Viðskipti erlent Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Viðskipti innlent Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira