Áhrif gengislánadóms 13,8 milljarðar hjá Arion banka 15. mars 2012 10:18 Höskuldur Ólafsson, bankastjóri Arion banki.
Dómur Hæstaréttar frá 15. febrúar á þessu ári, er varðar gengistryggð lán, hefur neikvæð áhrif á afkomu Arion banka fyrir árið 2011 upp á sem nemur 13,8 milljörðum króna. Þetta kemur fram í tilkynningu bankans vegna uppgjörs fyrir árið 2011. Hagnaður bankans eftir skatt nam 11,1 milljarði króna fyrir árið í fyrra samanborið við 12,6 milljarða árið 2010. Meðallaun hækkuðu um 9,3 prósent að meðaltali en launavísitala Hagstofu Íslands hækkaði um 9,2 prósent á sama tímabili. Eiginfjárhlutfall bankans er nú 21,2 prósent samanborið við 19,2 prósent í lok árs 2010. Heildareignir bankans eru nú metnar á 892,1 milljarð króna og var eigið fé 114,6 milljarðar í lok árs 2011. Helstu atriði vegna uppgjörs Arion banka fyrir árið 2011 má sjá hér að neðan: Hagnaður eftir skatta nam 11,1 ma.kr. árið 2011 samanborið við 12,6 ma.kr. árið 2010. Hreinar rekstrartekjur námu alls 33,3 ma.kr. á árinu samanborið við 35,6 ma.kr. árið 2010. Hreinar vaxtatekjur námu 23,4 ma.kr. samanborið við 19,8 ma.kr. árið 2010. Hreinar þóknanatekjur námu 10,7 ma.kr. samanborið við 6,9 ma.kr. árið 2010. Endurmat og söluhagnaður á eignum bankans leiddi til 6,6 ma.kr. virðisaukningar sem bókfærð er í gegnum rekstrarreikning þegar hlutdeild Kaupþings í hækkuninni hafði verið tekin með. Dómur Hæstaréttar frá 15. febrúar 2012 hefur neikvæð áhrif á afkomu bankans fyrir skatta sem nemur 13,8 mö.kr. eða um 11 ma.kr. eftir skatta. Arðsemi eigin fjár var 10,5% en var 13,4% árið 2010. Arðsemi af reglulegri starfsemi var 10,8% samanborið við 8,8% á fyrra ári. Vaxtamunur af meðalstöðu vaxtaberandi eigna var 3,4% á árinu samanborið við 2,8% árið 2010. Reiknaður tekjuskattur nam 1,9 ma.kr. en var 3,5 ma.kr. árið 2010. Til viðbótar nam sérstakur bankaskattur 1.046 milljónum á árinu samanborið við 290 milljónir árið 2010. Kostnaðarhlutfall var 52,5% samanborið við 54,2% árið 2010. Eiginfjárhlutfall var 21,2% samanborið við 19,0% í lok árs 2010. FME gerir kröfu um 16% eiginfjárhlutfall. Lausafjárhlutfall bankans var 34,7% sem er vel yfir 20% kröfu FME. Reiðufjárhlutfall bankans var 15,3%, en FME gerir kröfu um 5%. Útlán til viðskiptavina námu 561,6 ma.kr., samanborið við 451,2 ma.kr. í árslok 2010. Aukningin skýrst fyrst og fremst af yfirtöku á íbúðalánasafni Kaupþings undir lok árs 2011. Innlán námu 490,0 ma.kr. samanborið við 457,9 ma.kr. í árslok 2010. Heildareignir námu 892,1 ma.kr., samanborið við 812,6 ma.kr. í lok árs 2010. Eigið fé bankans í árslok 2011 var 114,6 ma.kr. en nam 109,5 ma.kr. í árslok 2010. Á fyrri helmingi ársins greiddi bankinn arð til ríkisins upp á rúma 6 ma.kr. skv. sérstöku samkomulagi milli Skilanefndar Kaupþings og ríkisins frá september 2009 um greiðslu arðs að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Í lok árs voru 1.158 stöðugildi hjá samstæðunni, samanborið við 1.241 í árslok 2010. Hjá bankanum sjálfum voru stöðugildi 858 í árslok samanborið við 936 í árslok 2010.
Mest lesið „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Forsteyptar húseiningar einfalda byggingarferlið Samstarf Daði Már kennir olíufélögunum um Viðskipti innlent Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Viðskipti innlent Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Viðskipti erlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira