Blóðbað á markaði, íbúðabréf falla um 14% 13. mars 2012 10:18
Lagasetningin um hert gjaldeyrishöft á Alþingi í nótt kallaði fram mikil viðbrögð á skuldabréfamarkaði í morgun. Þannig hafa stutt íbúðabréf eða flokkurinn HFF14 lækkað um 14% í verði og HFF24 hafa lækkað um 2,5%. Þessar lækkanir hafa síðan smitað út frá sér yfir í ríkisskuldabréf. Valdimar Ármann hagfræðingur hjá GAMMA segir að þessar lækkanir komi ekki á óvart og að markaðsaðilar hafi verið viðbúnir þeim eftir að herðingin á höftunum var samþykkt í nótt. HFF14 íbúðabréfin eru þau stystu á markaðinum og því vinsæl meðal þeirra erlendu fjárfesta sem hafa viljað koma krónum sínum úr landi. Valdimar telur að það séu einkum hinir erlendu fjárfestar sem selt hafa bréf sín í morgun. Sem dæmi um veltuna má nefna að bréf úr flokknum HFF24 hafa selst fyrir yfir þrjá milljarða króna. Fallið á íbúðabréfunum hefur síðan smitað út frá sér yfir í ríkisskuldabréf en þar er lækkunin ekki nándar nærri eins mikil. Lækkunin er á bilinu 0,2 til 2,5% ríkisbréfaflokkunum. Raunar segir Valdimar að óverðtryggð ríkisskuldabréf hafi nokkurn veginn haldið sjó í morgun og aðeins lækkað um 0,5%. Þess má og geta að Íbúðalánasjóður sendi frá sér tilkynningu til Kauphallarinnar í morgun þar sem sjóðurinn heimilaði aðalmiðlurum sínum að vinna með aukið verðbil á milli sölu- og kauptilboða fyrsta klukkutímann eftir opnun markaða. Þetta var gert vegna markaðsaðstæðna að því er segir í tilkynningunni.
Mest lesið „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Daði Már kennir olíufélögunum um Viðskipti innlent Forsteyptar húseiningar einfalda byggingarferlið Samstarf Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Viðskipti innlent Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Viðskipti erlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira