Már um afnámsáætlun: Þú færð hvergi betri ávöxtun Magnús Halldórsson skrifar 21. mars 2012 13:41
Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, segir það vera það „eina rétta" fyrir íslenska lífeyrissjóði að selja eignir erlendis, og fjárfesta í íslenskum ríkisskuldabréfum, á grundvelli áætlunar Seðlabanka Íslands um afnám gjaldeyrishafta. „Þú færð hvergi betri ávöxtun, það er bara þannig," sagði Már, aðspurður um þátttöku lífeyrissjóðanna í útboðum Seðlabankans, sem eru hluti af áætlun um afnám hafta. Hann segir að áætlunin hafi að vissu leyti orðið „fyrir áfalli" vegna slæmrar stöðu á erlendum mörkuðum, þar helst í Evrópu, á síðustu mánuðum ársins í fyrra. Staðan hafi hins vegar breyst, og að þátttaka í útboðum bankans hafi verið betri nú. Varðandi stýrivaxtahækkun peningastefnunefndar Seðlabanka Ísland í morgun, um 0,25 prósentustig, segir Már að hún ætti ekki að koma á óvart í ljósi aðstæðna. Verðbólguhorfur hafi heldur versnað frá því síðast, ekki síst vegna veikingar krónunnar að undanförnu, og því hafi hækkun verið nauðsynleg ráðstöfun. Már svaraði spurningum fréttastofu varðandi afnám hafta, verðbólguhorfur, þunga gjalddaga hjá sveitarfélögum og fyrirtækjum, og fleira, að loknum kynningarfundi í seðlabankanum í morgun. Sjá má viðtalið í heild sinni hér, og í myndbandinu sem er meðfylgjandi fréttinni.
Mest lesið „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Forsteyptar húseiningar einfalda byggingarferlið Samstarf Daði Már kennir olíufélögunum um Viðskipti innlent Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Viðskipti innlent Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Viðskipti erlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira