Fermingar hafa mikil áhrif á hagkerfið 4. apríl 2012 19:45
Fermingar hafa umtalsverð áhrif á hagkerfið á þessum tíma ársins, en yfir fjögur þúsund Íslendingar eru nú á fermingaraldri. Fréttastofa komst í raun um að fermingarveislur hafa í för með sér milljarðaveltu í hagkerfinu og skipta umtalsverðu máli fyrir kaupmenn. Fermingin er stór stund fyrir unglinga á fjórtánda aldursári. Fermingarveisluhaldið, sem þessum tímamótum fylgja, hefur umtalsverð veltuáhrif á hagkerfið. Veislan og gjafirnar kosta jú sitt. Fermingarveislur eru misjafnlega miklar að umfangi, eins og gengur, en þær hafa töluverð áhrif á veltu á ýmsum vörum sem tengjast veislunum, svo sem mat- og gjafavörum. Þannig tvöfaldast iðulega sala á rjóma-, ýmsum ostategundum og ostakökum, hjá Mjólkursamsölunni í kringum fermingar. En hver er veltan í fermingarhagkerfinu? Í veislu með hundrað gestum kostar veisluhald 300 þúsund. Virði gjafa gesta til fermingarbarnsins er um 500 þúsund, með reiðufé og öllu. Miðað við að 90 prósent þeirra 4.178 einstaklinga sem eru nú á fermingaraldri fermist, þá er veltan um þrír milljarðar, miðað við að fyrrnefnt dæmi sé meðaltal fyrir hverja veislu. Í minni og ódýrari veislu, með fimmtíu gesti, kostar veisluhaldið 100 þúsund og virði gjafa er 250 þúsund. Heildarveltan í fermingarhagkerfinu yrði miðað við þetta um 1,7 milljarðar króna. Þetta sýnir kannski það helst, að fermingin snýst ekkert síður um beinharða peninga fyrir kaupmenn, en trúrækni unglinga.
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Viðskipti innlent Forsteyptar húseiningar einfalda byggingarferlið Samstarf Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Viðskipti erlent Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Viðskipti innlent Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Viðskipti innlent Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira