Glitnir lánaði Björgólfi 2.7 milljarða 16. apríl 2012 18:30
Glitnir lánaði Björgólfi Guðmundssyni 2,7 milljarða króna án nokkurra veða, að því er fram kemur í stefnu slitastjórnarinnar gegn endurskoðunarfyrirtækinu PWC. Slitastjórnin telur PWC algjörlega hafa brugðist í hlutverki sínu sem endurskoðandi bankans fyrir hrun. Stefna slitastjórnar Glitnis gegn endurskoðunarfyrirtækinu PWC var lögð fram í Héraðsdómi Reykjavíkur við þingfestingu 12. apríl sl. en í henni er nákvæmlega rakið hvernig endurskoðunarfyrirtækið á að hafa brugðist hlutverki sínu sem endurskoðandi reikninga bankans, að mati slitastjórnarinnar. Í stefnunni er sagt að stórfelldir ágallar hafi verið á ársreikningum Glitnis fyrir árið 2007 og einnig árshlutauppgjörum 2008. Sérstaklega er tilgreint að lán til stærstu eigenda bankans fyrir hrun hans undir þeirra stjórn, m.a Baugs og FL Group, sem nú heitir Stoðir, hafi verið langt umfram heimildir um stórar áhættuskuldbindingar. Þá kemur einnig fram að bankinn hafi fjármagnað fjórðung af eigin hlutafé, án þess að með nokkrum hætti hefði verið hægt að lesa það út úr ársreikningum. Slitastjórnin telur að PWC hafi brotið gegn samningsbundinni eftirlitsskyldu með beinlínis rangri endurskoðun. Í stefnunni segir enn fremur að Glitnir hafi lánað Björgólfi Guðmundssyni, fyrrverandi formanni bankaráðs Landsbankans sem nú er gjaldþrota, 2,7 milljarða án veða, en að mati slitastjórnar Glitnis voru útlán stórlega ofmetin í mörgum tilvikum í ársreikningum, og þannig dregin upp staða af banka sem var í traustri stöðu, meðan reyndin var allt önnur. Málið verður að nýju tekið fyrir í héraðsdómi í júní nk. en þá mun PWC leggja fram gögn í málinu en því er alfarið neitað að hálfu endurskoðunarfyrirtækisins að lög og reglur hafi verið brotnar.
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Forsteyptar húseiningar einfalda byggingarferlið Samstarf Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Viðskipti innlent Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Viðskipti erlent Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Viðskipti innlent Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Viðskipti innlent Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira