Danir herða reglur um kvótaframsal og takmarka eignarhald 20. apríl 2012 10:12
Danska stjórnin hefur ákveðið að herða reglur um framsal á fiskikvótum í landinu og jafnframt verður eignarhald einstakra útgerða á kvótum takmarkað. Þessi ákvörðun kemur í kjölfar umfjöllunnar í Jyllands Posten síðasta sumar þar sem fram kom að fjórðungur af öllum kvótum Danmerkur er nú skráður á aðeins átta fiskveiðiskip og togara en verðmæti þess kvóta er um 4,8 milljarðar danskra króna eða vel yfir 100 milljarða króna. Þar af var kvóti fyrir um milljarð danskra króna skráður á einstakt skip, það er uppsjávarveiðiskipið Isafold í Hirsthals. Sala á kvótum milli útgerða var heimiluð í Danmörku árið 2006 en síðan þá hefur kvótinn safnast saman á æ færri hendur. Þeirri þróun á nú að snúa við enda hafa margir fiskveiðibæir orðið hart úti þar sem kvótinn hefur verið seldur frá útgerðum þar. Hinar nýju reglur munu m.a. fela í sér að engin einstök útgerð má ekki eiga meir en 5% af þorskkvóta Dana í Norðursjó.
Mest lesið Tollgæslustjóri hafi lofað MS tollflokkuninni umdeildu Viðskipti innlent Bræður selja Vagna og þjónustu eftir 40 ára rekstur Viðskipti innlent Svartir sauðir: „Stjórnendur þurfa að hafa kjarkinn til að ræða fjarvistir vegna veikinda“ Atvinnulíf Mega ekki kenna haframjólk við mjólk Viðskipti erlent Stjórn Íslandsbanka vill greiða tólf milljarða í arð Viðskipti innlent Spá því að verðbólga fari strax undir fimm prósent Viðskipti innlent „Laxaveisla á Íslandi“ og útlit fyrir umtalsverðan vöxt í framleiðslu Viðskipti innlent Hreingerningafyrirtæki brýtur blað í fræðslumálum Samstarf Hjálpar skiptastjórum að greina eignaundanskot Samstarf Fjölga verslunum í Danaveldinu Neytendur Fleiri fréttir Mega ekki kenna haframjólk við mjólk Auglýsingarnar súrari og skrýtnari en húmorinn í fyrirrúmi Allar auglýsingar Ofurskálarinnar á einum stað Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira
Svartir sauðir: „Stjórnendur þurfa að hafa kjarkinn til að ræða fjarvistir vegna veikinda“ Atvinnulíf
Svartir sauðir: „Stjórnendur þurfa að hafa kjarkinn til að ræða fjarvistir vegna veikinda“ Atvinnulíf