Þjálfari Fylkis áminntur fyrir ummæli um dómara og félagið sektað Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 28. júní 2012 15:32 Jón Páll Pálmason, þjálfari Fylkis. Mynd / Stefán
Jón Páll Pálmason, þjálfari Fylkis í efstu deild kvenna í knattspyrnu, hefur verið áminntur af aga- og úrskurðarnefnd Knattspyrnusambands Íslands vegna niðrandi ummæla um dómara. Jón Páll fór mikinn í viðtali við Fótbolta.net að loknu tapi Fylkis gegn Val í Pepsi-deild kvenna á dögunum. „Það sem gerist hér er að hann dæmir alltaf þegar Valsstelpurnar detta. Þegar við látum í okkur heyra þá er það spjald. Við fáum fjögur spjöld. Þegar við förum í tæklingar, þá er dæmt brot. Hann er bara heigull, þetta er algjör heigulskapur. Hann bognar undan vælinu í Valsstelpunum," sagði Jón Páll meðal annars í viðtalinu og hvatti til þess að hljóðnema yrði komið fyrir á vellinum til þess að fylgjast með „vælinu". „Stöð 2 ætti að mæta hérna, sýna leikina og vera með míkrafón inná vellinum því þar er alvöru væl. Þeir ættu að sjá hvernig þessir herramenn taka á þessu. Ég held að það væri langbest að fá heyrnalausa menn til þess að dæma leikinn, sem heyra ekki vælið og eru með pung til þess að dæma helvítis leikinn eins og menn." Auk áminningu Jóns Páls var knattspyrnudeild Fylkis sektuð um 25 þúsund krónur.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið „Fæ meira borgað fyrir fyrsta bardagann en flestir fá yfir allan ferilinn“ Sport Dæmdur sekur vegna sex viðbjóðslegra færslna Enski boltinn Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Íslenski boltinn Leikmaður ÍA búinn á því í upphitun Körfubolti Fjölmargir borguðu sig inn á langþráða æfingu Fótbolti „Orðfærið og dónaskapurinn með ólíkindum“ Handbolti Þakklátur Klopp fyrir ríginn: „Ég sakna hans“ Enski boltinn Dagskráin í dag: Formúla, frábærir leikir í enska og uppgjör frægra í Doc Zone Sport „Tækifæri fyrir aðra að stíga upp og sýna sig“ Handbolti Uppgjör: Grindavík - Keflavík 104-92 | Ekkert stöðvar Grindvíkinga Körfubolti Fleiri fréttir Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ „Hefði séð eftir því alla ævi“ Sjá meira