Félag atvinnurekenda óskar eftir upplýsingum um Lýsingu frá FME 28. júní 2012 11:56
Félag atvinnurekenda hefur skrifað bréf til FME sem varðar fjármögnunarleigusamninga Lýsingar. Í tilkynningu sem félagið sendir á fjölmiðla segir að óskað sé eftir að FME veiti félaginu tölulegar upplýsingar um framkvæmd þessara samninga, enda er mikil óvissa um þetta efni. Í bréfinu sem félagið sendi FME segir m.a.: „Félagi atvinnurekenda hafa borist fjöldamargar kvartanir vegna starfshátta fjármálafyrirtækisins Lýsingar í tengslum við eina af fjármögnunarleiðum þess, þ.e. fjármögnunarleigusamninga. Í öllum tilfellum er umkvörtunarefnið það að Lýsing vilji ekki viðurkenna endurkauparétt viðskiptavina sinna þrátt fyrir að um hann hafi verið samið þó það hafi í mörgum tilfellum ekki verið gert skriflega. Komu þessi sinnaskipti upp eftir að deilur tóku að rísa um skilin á milli leigusamninga annars vegar og lánssamninga hins vegar. Eftir þann tíma tók Lýsing uppá því að þræta fyrir framangreinda skuldbindingu. Ljóst er þeir aðilar sem sóttu fjármögnun til Lýsingar gerðu það með það fyrir sjónum að kaupréttur væri á samningsandlaginu. Þessi skilningur er staðfestur á heimasíðu Lýsingar þar sem slíkur réttur er staðfestur og í langri framkvæmd fyrirtækisins í þá veru. Þá styðst það við ákveðin eðlisrök að lántaki ætli sér ekki að greiða lánsandlagið að fullu með vöxtum og gjöldum án þess að eignast það." Félag atvinnurekenda hefur einnig útvegað fjölda vitnisburða frá viðskiptavinum Lýsingar til að sýna fram á ofangreint og þá meintu óréttmætu viðskiptahætti sem félagið vill meina að Lýsing hafi beitt í málum sem þessum.
Mest lesið „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Viðskipti innlent Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent Miklar hækkanir í lágvöruverðsverslunum í byrjun árs Neytendur Forsteyptar húseiningar einfalda byggingarferlið Samstarf Kemur frá Icelandair til Varðar Viðskipti innlent Ísland eins og stefnumótasíða í sjávarútvegi Atvinnulíf Fleiri fréttir Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Sjá meira