Stuðningsgrein: Hún verður vitur forseti Guðmundur W. Vilhjálmsson skrifar 25. júní 2012 19:00 Tveir Þor-geirar eru frægir úr sögum okkar Íslendinga. Annar þeirra er Þorgeir Hávarsson, kjarkmaður mikill en kjarkur hans var í öfugu hlutfalli við vit. Hann drap að ósekju fjölda manna sem minna máttu sín til að auka virðingu sína. Fyrirmyndir hans voru þeir íslenskir sem fóru til hirða norskra konunga til að elta lýð og drepa. Annar þor-geir var Þorgeir Ljósvetningagoði, sem hafði góðan kjark, en því fylgdi vit meira. Sá Þorgeir hafði kjark til að leggjast undir feld til að hug- leiða gerning til sátta þegar við lá að kristnir menn og heiðnir myndu berjast á Alþingi til úrslita um kristnitöku þjóðarinnar. Undan feldi kom þessi Þorgeir með afurð vit síns, sáttatillögu sem þingheimur sættist á og komst þá friður með þjóðinni. Í umræðum um framboð einstaklinga til kjörs um embætti forseta Íslands hefur komið fram að frambjóðendur þurftu að sanna kjark sinn með yfirlýsingum um þor til að beita valdi forsetans skv 26. gr. stjórnarskráinnar til að neita að undirrita lög og efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um þau lög. Ekki var spurt um kjark til að neita ekki að undirrrita. Forseti Íslands hafði sýnt kjark til þessara aðgerða ítrekað. Í Icesave málinu skipaði Alþingi nefnd til fara til London og semja við Breta og Hollendinga um þau afdrífaríku mál. Til þeirrar ferðar voru valdir menn sem litla reynslu höfðu í milliríkjamálaferlum, en lög til að staðfesta niðurstöður samninga sem nefndin kom með voru samþykkt af tæpum meirhluta þingsins. Forsetinn neitaði að staðfesta lögin og vísaði þeim til þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem þjóðin hafnaði þeim. Nú taldi þingið að Icesave málið væri enn komið í sínar hendur, skipaði nýja nefnd til að semja við við Breta og Hollendinga, útbjó hana með nesti og nýja skó og réð þeim til fulltingis lögfræðing sem hafði mikla reynslu í milliríkjadeilum, Mr Lee C. Buchheit. Sú nefnd kom heim með samningsuppkast til samþykkis Alþingis. Þessi tvenn samningsdrög áttu ekkert sameiginlegt nema nafnið. Seinna samningsuppkastið var það miklu betra og fannst mönnum að forsetinn hefði forðað þjóðinni frá hörðum kosti. Alþingi vann nú það verk sem það var kjörið til og samþykkti drögin með 70% atkvæða og létti mörgum. Slíkur meirihluti er fátíður á alþingi. En nú kemur að spurningunni um hvort beiting 26. Gr. stjórnarskrárinnar er ávanabindandi, þvi enn beitir forseti vor synjunarheimild sinni og málið fer aftur í þjóðaratkvæðagreiðslu og þar er lögunum enn synjað gildis. Vitað var að betri samningur myndi ekki fást. Má segja að örlögin hafi í upphafi stefnt okkur í málaferli. Að mínu mati hefði sitjandi forseti lokið sínum ferli á Bessastöðum með meiri reisn með undirritun laga um síðara samningsuppkastið. En var þjóðin þá ekki dómbær í þessu máli? Nei, hún var ekki undirbúin né nógu vel upplýst í mjög flóknu máli. Fjölmiðlar greindu ekki nógu vel frá því hvað tæki við ef samningnum yrði hafnað. Fyrir nokkru birstist grein í fjölmiðli hér þess efnis að töluvert hefði verið greitt inn á Icesave reikninginn. Kona ein brást svo við þessari frásögn: Ég hélt að við hefðum í þjóðaratkvæðagreiðslunni ákveðið að borga ekki skuldir óreiðumanna, að borga ekki neitt! Umdeildar fjárhæðir voru innistæður einstaklinga, sveitafélaga og hópa sem féllu fyrir yfirboði Landsbankans á vöxtum á Icesavereikningum í Englandi, Hollandi og víðar. Svo kom hrunið og akkerisfestar voru engar. Engar trygginar voru að baki þessum innstæðum. Útibú Landsbankans erlendis voru heimilislausir flækingar. Ríkisstjórnir landa þar sem íslensku útibúin störfuðu greiddu innistæðueigendum hámarksbætur skv. reglum Evrópusambandsins, sem voru 20.000 evrur. Við hrunið ákvað ríkisstjórn Íslands að allar innistæður í íslenskum bönkum á Íslandi skyldu vera að fullu tryggðar. Nú eru Icesave reikningarnir efnisþáttur í málaferlum Bretlands og Hollands gegn ríkisstjórn Íslands. Krafa þeirra er að Ísland endurgreiði útlagt fé þessara ríkisstjórna til innistæðueigenda. En jafnframt er bent á mismunun í bótum á Íslandi annars vegar, þar sem innistæður voru að fullu greiddar, og hinsvegar þar sem hámarksbætur námu 20.000 evrum. Vonandi nær krafa í dómsmálinu um fullar bætur ekki fram að ganga. Bú Landsbankans í Bretlandi mun eiga sjóði til að greiða bætur miðað við innistæður að upphæð eur 20.000. Falli dómur á þá leið að íslenska ríkinu beri að bæta að fullu hinum erlendu innistæðueigendum, þar sem um mismunun hefði verið að ræða, verður um mikið hærri upphæðir að ræða. Forseti Íslands hefur nú setið í embætti í 16 ár, eða fjögur kjörtímabil. Kóngar og keisarar „ríkja" til æviloka en þeir eru ekki þjóðkjörnir. Forseti Íslands á ekki að gegna embætti lengur en þrjú kjörtímabil, enda mannval mikið hér, eins og forsetinn hefur ítrekað lagt áherslu á. Við það val eiga stjórnmálaflokkar ekki að koma. Það hefur reynslan sýnt. Næsti forseti fær m.a. það hlutverk að brúa bil milli forseta og þings. Virðing þingsins er í lágmarki meðal þjóðarinnar en á því verður þingið sjálft að finna lausn. Það er ekki í verkahring forseta. Við þessar kosningar sem nú eiga að fara fram tel ég Þóru Arnórsdóttir góðan kost í embættið. Ég tel hana hafa margumrætt þor, bæði til að gera – og gera ekki. Hún mun skilja að Alþingi, ríkisstjórn, dómstólar og forseti, allt er þetta hluti af þjóðinni. Ég mun kjósa Þóru Arnórsdóttir. Ég veit að hún verður vitur forseti. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Forsetakosningar 2012 Mest lesið Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason Skoðun