Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar 30. október 2026 18:01 Um Muhammad Taqi Usmani, hugmyndafræðilega aðför að samviskufrelsinu, sannleiksgildi fagnaðarerindisins og ábyrgð kristinnar kirkju. Heimsókn pakistanska trúarleiðtogans Muhammad Taqi Usmani til Íslands í október hefur vakið verðskuldaða umræðu um trúfrelsi, mannréttindi og þau gildi sem íslenskt samfélag byggir á. Guðrún Karls Helgudóttir, biskup Íslands, sagði í samtali við Morgunblaðið 27. Október að ef upplýsingar um boðskap Usmani reyndust réttar stangaðist hann á við þau gildi sem kristin kirkja og samfélag okkar stæðu fyrir. Ég tek undir að trúarleg þvingun og dauðarefsingar fyrir trúskipti standast ekki þær kröfur sem við eigum að gera til virðingar fyrir mannslífi og samvisku. En mig langar að ganga lengra. Þetta mál snýst ekki aðeins um skoðanir eins pakistansks trúarleiðtoga. Það snertir grundvallarspurningar um sannleikann, frelsið til að trúa og það vald sem trúarlegar stofnanir telja sig hafa yfir samvisku mannsins. Og umfram allt kallar það á að við kristnir menn spyrjum okkur sjálf hvort við höfum nægilega skýran skilning á þeim sannleika sem okkur hefur verið trúað fyrir. Leyfið mér að byrja á einföldu dæmi. Manneskjan sem fer að lesa um Jesú Hugsum okkur múslímska manneskju sem flytur ásamt fjölskyldu sinni frá Pakistan til Íslands. Viðkomandi lærir tungumálið, eignast vini og kynnist íslensku samfélagi. Einhvern daginn fer þessi manneskja að velta kristinni trú fyrir sér. Kannski heyrir viðkomandi íslenska vini tala um kristna trú. Kannski heimsækir viðkomandi kirkju eða fær Nýja testamentið í hendurnar. Og svo hefst lesturinn. Viðkomandi uppgötvar að Jesús Nýja testamentisins er ekki aðeins spámaður, heldur sá sem Jóhannes kallar Orðið sem varð hold (Jóh 1:1–14). Þar er sagt frá krossinum, upprisunni, fyrirgefningu syndanna og hjálpræði af náð. Og þar standa orð Jesú í Jóhannesi 6:37: „Þann sem til mín kemur mun ég alls ekki burt reka.“ Og smám saman kemst þessi manneskja að þeirri sannfæringu að Jesús Kristur sé sá sem hann segist vera. Viðkomandi ákveður að játa Krist sem Drottin sinn. Hvað þá? Á Íslandi nýtur sérhver manneskja trúfrelsis. Hún hefur rétt til að leita, efast, rannsaka og fylgja sannfæringu sinni. Um sjálfstæða ákvörðun um aðild að trúfélagi gilda jafnframt sérstakar aldursreglur. En hvað ef viðkomandi flytur aftur til Pakistans? Samkvæmt þeirri hefðbundnu íslömsku réttarkenningu sem Usmani hefur varið getur fráhvarf frá íslam varðað dauðarefsingu þegar íslamskt ríkisvald framfylgir slíkri túlkun. Pakistan hefur ekki sérstakt lagaákvæði sem gerir trúarfráhvarf eitt og sér að sjálfstæðu dauðarefsibroti. Hins vegar geta þeir sem yfirgefa íslam og taka kristna trú sætt guðlastsásökunum, hótunum, mismunun og ofbeldi. Þetta er ekki ímynduð hætta. Í úttekt breska innanríkisráðuneytisins frá júlí 2026 er sérstaklega bent á að fólk sem hefur snúist frá íslam til kristni og iðkar hana opinberlega geti átt raunverulega hættu á ofsóknum eða alvarlegu tjóni. Og nú langar mig að spyrja: Hvað hefur þessi manneskja gert af sér? Viðkomandi hefur lesið. Spurt. Rannsakað. Komist að niðurstöðu. Enginn hefur orðið fyrir árás, enginn verið hvattur til uppreisnar og engum verið hótað. Þessi manneskja hefur einfaldlega skipt um trú. Hvernig getur slík ákvörðun orðið tilefni til dauðarefsingar? Þegar trúarleg sannfæring verður að refsikerfi Hér þurfum við að gera Muhammad Taqi Usmani rétt skil. Í enskri þýðingu á skrifum hans úr Takmilah Fath al-Mulhim, 2. Bindi, bls. 272–280, fjallar hann ítarlega um refsingu fyrir fráhvarf frá íslam. Þar hafnar hann sérstaklega þeirri túlkun að dauðarefsing eigi aðeins við þegar trúarfráhvarfi fylgir uppreisn eða ofbeldi gegn íslömsku samfélagi. Hann heldur því fram að fráhvarfið sjálft geti verið refsivert samkvæmt íslömskum rétti. Þetta er mikilvægt, því sumir íslamskir fræðimenn hafa einmitt viljað túlka hefðbundnar refsireglur þannig að þær taki til landráða eða vopnaðrar uppreisnar fremur en persónulegrar trúarsannfæringar. Usmani hafnar þeirri afmörkun. Hann fjallar einnig um súru 2:256 í Kóraninum, þar sem segir að engin þvingun skuli vera í trú, en telur að það ákvæði verndi ekki með sama hætti þann sem hefur þegar verið múslimi og ákveður að yfirgefa íslam. Þetta er grundvallaratriði. Trúfrelsi sem heimilar manni að ganga inn í trúarbrögð en neitar honum frelsi til að ganga út úr þeim er ekki fullt trúfrelsi. Við skulum þó halda því til haga að Usmani fordæmdi árásir á kristna í Jaranwala í Pakistan árið 2023 og sagði að enginn hefði rétt til að taka lögin í eigin hendur, brenna kirkjur eða ráðast á friðsama kristna borgara. Það er mikilvægt og rétt að viðurkenna. En það er eitt að fordæma múgofbeldi og annað að verja lagalega dauðarefsingu fyrir trúarfráhvarf. Og þar kemur að kjarnanum. Þegar hugmyndafræðin gerir aðför að samviskunni Við skulum kalla hlutina sínum réttu nöfnum. Það er eitt að telja sína eigin trú sanna og trú annarra ranga. Það er hluti af trúfrelsinu. Kristinn maður hefur rétt til að játa að Jesús Kristur sé vegurinn, sannleikurinn og lífið. Múslimi hefur sama rétt til að játa sannfæringu sína um íslam. Við megum ræða málin, gagnrýna hugmyndir, bera saman heimildir og jafnvel komast að þeirri niðurstöðu að kenningar annars trúarkerfis séu rangar. Það er ekki hugmyndafræðileg aðför. En það er allt annað að halda því fram að einstaklingur sem yfirgefur trú sína eigi að sæta dauðarefsingu. Þar erum við ekki lengur aðeins að ræða guðfræðilegan ágreining. Þar erum við komin að hugmyndafræðilegri aðför að samviskufrelsi mannsins. Hugmyndafræðileg aðför í þessum skilningi verður þegar hugmyndakerfi er notað til að réttlæta valdbeitingu, hótanir eða refsingar gegn fólki fyrir að hugsa, efast eða fylgja annarri sannfæringu. Munurinn er grundvallaratriði. Að færa rök gegn trúarlegri sannfæringu er þátttaka í frjálsri umræðu. Að hóta manni refsingu fyrir að yfirgefa hana er tilraun til að stjórna samvisku hans. Og fátt sýnir þá tilraun með skýrari hætti en sú krafa að maður skuli missa lífið fyrir að skipta um trú. Þá er ekki lengur verið að sannfæra manninn um sannleikann. Það er verið að hóta honum fyrir að hafna honum. Og hér leyfi ég mér eina athugasemd: „Sá sem telur sig þurfa að hóta manni dauða til að halda honum í trúnni virðist hafa meiri trú á vald refsingarinnar en sannfæringarkraft sannleikans.“ Þetta er ekki sönnun þess að trú viðkomandi sé röng. Sannleiksgildi kenningar ræðst ekki af hegðun þeirra sem játa hana. En þetta afhjúpar alvarlega mótsögn í aðferðinni. Ef sannleikurinn á að sannfæra samviskuna, hvers vegna er þá nauðsynlegt að stjórna niðurstöðu hennar með hótun um dauða? Og hér verður mælikvarðinn að gilda um okkur öll. Ef við fordæmum slíka valdbeitingu í nafni íslams verðum við líka að horfast í augu við þá tíma í sögu kristninnar þegar kirkjulegt vald beitti nauðung, ofsóknum og jafnvel dauðarefsingum gegn trúarlegum andstæðingum sínum. Röng aðferð verður ekki rétt við það eitt að sá sem beitir henni telji sig hafa sannleikann sín megin. Við þurfum því að spyrja hvað Nýja testamentið sjálft kennir um vald, trú og samvisku. Hvað gerði Jesús þegar menn yfirgáfu hann? Í Jóhannesi 6. kafla gerist nokkuð athyglisvert. Jesús hefur kennt lærisveinum sínum og margir eiga erfitt með að taka við orðum hans. Í 66. Versi segir að margir lærisveinar hans hafi snúið við og ekki gengið lengur með honum. Hvað gerði Jesús? Hann sneri sér að þeim tólf og spurði: „Ætlið þér að fara líka?“ Og Pétur svaraði: „Drottinn, til hvers ættum vér að fara? Þú hefur orð eilífs lífs.“ (Jóh 6:68) Takið eftir þessu. Jesús breytti ekki boðskap sínum til að halda öllum ánægðum… En hann hótaði heldur ekki þeim sem vildu fara. Hann leyfði þeim bara að ganga í burtu. Þetta er ekki heildstæð stjórnskipunarregla dregin af einum texta, en það sýnir okkur mikilvægt atriði um eðli lærisveinshlýðni. Trú Péturs byggðist á því hver Jesús var og hvaða orð hann hafði. Ekki á því að honum væri bannað að fara. Og þegar við lesum áfram Nýja testamentið sjáum við að postularnir boðuðu fagnaðarerindið, rökræddu um Ritningarnar, kölluðu fólk til iðrunar og báru vitni um upprisuna. Þeir kölluðu menn til trúar á Krist… Ekki til trúar á refsingu ríkisvaldsins. Hver er Jesús – og hverjum eigum við að trúa? Hér komum við að því sem mér finnst vera enn stærra mál. Stundum er rætt um kristni og íslam eins og þetta séu í grundvallaratriðum sömu trúarbrögðin, þar sem helst beri ágreiningur um einstaka siði eða menningarlega þætti. En það stenst ekki þegar við skoðum kenninguna um Jesú Krist. Í Nýja testamentinu er Jesús hinn eilífi sonur Guðs, Orðið sem varð hold. Hann dó fyrir syndir okkar, var grafinn og reis upp á þriðja degi (1Kor 15:3–4). Í Kóraninum er Jesús mikilsvirtur spámaður og Messías, en guðdómur hans og sonareðli eru ekki viðurkennd með sama hætti og í kristinni trú. Og í súru 4:157 er því hafnað að Jesús hafi verið drepinn og krossfestur, samkvæmt hefðbundnum íslömskum skilningi textans. Þetta er ekki smávægilegur ágreiningur. Hér eru ósamrýmanlegar fullyrðingar um einn mikilvægasta atburð mannkynssögunnar. Og þá verðum við að spyrja sögulegrar spurningar: Hvaða heimildir höfum við um Jesú? Páll skrifaði Fyrra Korintubréf um 53–55 e.Kr., aðeins um tveimur áratugum eftir krossfestingu Jesú. Í 15. Kaflanum miðlar hann þeirri trúarjátningu sem hann segir að hann hafi sjálfur tekið við: Að Kristur hafi dáið fyrir syndir okkar, verið grafinn og risið upp á þriðja degi. Páll nefnir einnig Kefas, Jakob, postulana og fleiri sem hann segir hafa verið vitni að hinum upprisna Kristi. Í Galatabréfinu 1:18–19 segir Páll frá persónulegum kynnum sínum af Pétri og Jakobi, bróður Drottins. Við erum því að tala um vitnisburðarhefð sem varð til á fyrstu áratugunum eftir dauða Jesú, ekki trúarkenningu sem fyrst kemur fram mörgum öldum síðar. Lúkas segir í upphafi guðspjalls síns að hann hafi rannsakað frásagnir þeirra sem voru sjónarvottar frá upphafi. Jóhannesarguðspjall tengir frásögn sína einnig vitnisburði lærisveins (Jóh 21:24). Auðvitað eru fræðilegar umræður um höfundarverk guðspjallanna og nákvæma miðlun þessara heimilda. Þær eigum við ekki að fela. En það breytir ekki mikilvægi hins snemma vitnisburðar. Við höfum líka um 5800 handrit. Papýrus P46, sem varðveitir verulega hluta af bréfum Páls, er almennt aldursgreindur til um 200 e.Kr. Við eigum eldri og yngri handrit að ýmsum hlutum Nýja testamentisins, og með samanburði þeirra geta textafræðingar rannsakað varðveislu og breytingar textans. Handritin sanna auðvitað ekki sjálf að upprisan hafi átt sér stað. Þau sýna hins vegar að textarnir voru til, voru afritaðir og voru varðveittir löngu áður en íslam kom fram. Og svo er það rómverski sagnaritarinn Tacitus. Í Annales 15.44, sem ritað var snemma á annarri öld, greinir hann frá því að Kristur hafi verið tekinn af lífi í stjórnartíð Tíberíusar undir yfirvaldi Pontíusar Pílatusar. Tacitus var ekki kristinn trúboði. Krossfesting Jesú er þess vegna ekki aðeins trúarleg staðhæfing sem birtist innan kristinna heimilda. Hún hefur einnig sjálfstæðan sögulegan stuðning. Síðan kemur Kóraninn fram á sjöundu öld, nær sex öldum eftir þessa atburði, og hafnar krossfestingunni. Þar blasir við spurning sem verður ekki sniðgengin: Á hvaða sögulegum forsendum ættum við að láta opinberun frá sjöundu öld hnekkja mun eldri vitnisburði sjónarvotta um krossfestingu Jesú? Múslimi gæti svarað að Kóraninn sé orð Guðs og hafi því æðra vald en eldri mannlegar heimildir. En það er einmitt sú forsenda sem þarf að rannsaka. Það er ekki sjálfstæð sagnfræðileg sönnun að halda því fram að eigin helgirit hljóti að vera rétt vegna þess að það sé opinberun Guðs. Sama krafa um rannsókn og rökstuðning verður að gilda um okkar eigin túlkun Ritningarinnar. Við megum ekki gera ráð fyrir niðurstöðunni áður en við höfum skoðað forsendurnar. Hvar er náðin? En sögulegi ágreiningurinn er aðeins annar hluti málsins. Hinn er guðfræðilegur. Hvað er hjálpræði? Hvernig fær syndugur maður réttlæti frammi fyrir heilögum Guði? Hér er munurinn á kristni og íslam gríðarlegur. Kóraninn talar vissulega um miskunn Guðs og fyrirgefningu. Því væri ónákvæmt að halda því fram að íslam hefði alls enga kenningu um miskunn eða náð í víðri merkingu. En íslam hefur ekki þann krossfesta og upprisna frelsara sem Nýja testamentið boðar. Í kristinni trú er hjálpræðið ekki einfaldlega von um að miskunn Guðs muni að lokum vega þyngra en syndir mannsins. Páll skrifar í Efesusbréfinu 2:8–9 að við séum hólpin af náð fyrir trú, ekki af verkum. Í Rómverjabréfinu 3:24–26 tengir hann réttlætinguna beint við endurlausnina í Kristi og friðþægingu hans. Og í Rómverjabréfinu 5:8 birtist kjarni þessa fagnaðarerindis: En Guð auðsýnir kærleika sinn til vor, þar sem Kristur er fyrir oss dáinn meðan vér enn vorum í syndum vorum. Þetta er engin smávægileg áherslubreyting. Í kristinni trú er það Guð sjálfur sem hefur í Kristi gert það sem syndugur maður gat ekki gert fyrir sjálfan sig. Náðin er ekki aðeins möguleikinn á að Guð fyrirgefi. Hún birtist í sögulegu verki Jesú Krists, dauða hans og upprisu. Þess vegna verður krossinum ekki kippt út úr kristinni trú án þess að sjálft fagnaðarerindið breytist. Og þarna hugsa ég aftur til manneskjunnar sem við kynntumst í upphafi. Viðkomandi les um Krist sem býður syndurum að koma til sín. Jesú Kristur sem tók á móti þeim sem samfélagið hafði útskúfað. Kristur sem dó fyrir syndir þeirra sem gátu ekki frelsað sjálfa sig. Og síðan heyrir þessi manneskja trúarlega réttarkenningu sem segir að viðkomandi geti fyrirgert lífi sínu með því að taka við þessum Jesú Kristi. Það er ekki erfitt að sjá hversu djúpstæður guðfræðilegi ágreiningurinn er. En hvað er að gerast innan okkar eigin kirkju? Þegar við tölum um hugmyndafræðilega aðför verðum við líka að varast að nota hugtakið svo vítt að það glati merkingu sinni. Það er ekki sjálfkrafa hugmyndafræðileg aðför þegar einhver gagnrýnir kristna trú. Það er ekki aðför þegar samfélagið breytist eða fólk hafnar hefðbundinni biblíulegri túlkun. Það er þáttur í frelsi manna til að hafa ólíkar skoðanir. En þegar trúarleg stofnun notar vald sitt til að þrýsta á menn að ganga gegn samvisku sinni, eða beitir viðurlögum gegn þeim vegna trúarlegs ágreinings, þá vaknar réttmæt spurning um mörk þess valds. Þess vegna finnst mér afstaða þjóðkirkjunnar til samviskufrelsis presta eiga erindi inn í þessa umræðu. Ekki vegna þess að henni verði jafnað við dauðarefsingar fyrir trúarfráhvarf. Slíkur samanburður væri fráleitur. Heldur vegna þess að okkur ber að rannsaka hvernig samviskufrelsi er skilið og virt, líka innan okkar eigin trúarstofnana. Í svari Biskupsstofu til Alþingis 7. Júlí 2015 var tekið fram að engar sérstakar reglur væru í gildi sem heimiluðu prestum að synja þjónustu á grundvelli kynhneigðar. En í sömu greinargerð var jafnframt vísað til þess að þjóðkirkjan hefði talið mögulegt að tryggja rétt samkynja para til kirkjulegrar hjónavígslu án þess að friðhelgi samvisku einstakra presta væri fyrir borð borin. Þetta er athyglisverð afstaða. En á kirkjuþingi síðar sama ár var samþykkt ályktun um að prestum þjóðkirkjunnar væri ekki heimilt að synja hjónavígslu á grundvelli kynhneigðar. Guðrún Karls Helgudóttir var ein fimm flutningsmanna hennar. Hér vaknar raunveruleg spurning. Hvernig er samviskufrelsi einstakra presta tryggt þegar guðfræðileg sannfæring þeirra rekst á stefnu kirkjustofnunarinnar? Hvað með prest sem, eftir rannsókn á 1. Mósebók 2:24, Matteusi 19:4–6 og öðrum viðeigandi textum, er sannfærður um að hjónabandið sé samkvæmt sköpunarskipan Guðs samband karls og konu? Má hann halda þeirri sannfæringu? Það er augljóst að hann má hafa skoðanir… En má sannfæringin hafa áhrif á þær trúarlegu athafnir sem hann sjálfur framkvæmir? Og ef svarið er nei, á hvaða biblíulegu, játningarlegu og lagalegu forsendum hvílir sú niðurstaða? Það er grundvallarmunur á því að neita manneskju um borgaraleg réttindi og því að trúfélag haldi fast við eigin kenningar um embætti, hjónaband og trúarlegar athafnir. Jafnræði fyrir lögum þýðir ekki sjálfkrafa að öll trúfélög verði að hafa sömu guðfræði eða sömu embættisskipan. Trúfrelsi felur einnig í sér rétt trúfélaga til að varðveita eigin kenningar, innan þeirra marka sem lög og réttindi annarra setja. Þess vegna verður að greina á milli þess að vera guðfræðilega ósammála viðurkenningu hjónabands samkynja para og þess að vilja svipta þá einstaklinga borgaralegum rétti til hjónabands. Slíkur greinarmunur er ekki undanþága frá trúfrelsi... Hann er hluti af því. Jafnframt ber þjóðkirkjan ábyrgð gagnvart þeim sem leita til hennar og hefur sjálfstæði til að skilgreina starf sitt og skyldur presta innan lögmætra marka. Ég er því ekki að fullyrða að ályktun kirkjuþings hafi sjálfkrafa brotið gegn lögvörðu samviskufrelsi presta. Til að meta slíkt þyrftum við að skoða núgildandi reglur, framkvæmd þeirra og hugsanleg viðurlög. En ég tel fulla ástæðu til að ræða hvort kirkjan geti samræmt réttindi þeirra sem óska þjónustu og samvisku þeirra sem eiga að veita hana. Slíkt samtal þarf ekki að byggjast á óvild í garð neins. Og það má ekki afgreiða guðfræðilegan ágreining með því einu að vísa til ríkjandi samfélagsskoðana. Kirkjan er ekki aðeins stofnun sem endurspeglar samfélagið… Hún er kölluð til að hlýða Jesú Kristi. Kross á fánanum – en hvað með Krist? Við Íslendingar eigum langa kristna sögu. Krossinn er í þjóðfánanum. Þjóðsöngurinn okkar, „Ó, guð vors lands“, ber skýr merki biblíulegrar trúar og sálmahefðar, enda saminn með Sálm 90 sem innblástur. Kristin trú hefur haft djúpstæð áhrif á þjóðmenningu okkar, lög, menntun og hugmyndir um mannlega reisn. En menningarleg arfleifð er ekki það sama og lifandi trú. Það er hægt að varðveita krossinn sem þjóðartákn og glata um leið skilningnum á krossi Krists. Það er hægt að syngja um Guð án þess að vilja heyra það sem hann hefur opinberað um sjálfan sig. Og það er hægt að tala um kristin gildi án þess að boða þann Krist sem er grundvöllur þeirra. Þarna tel ég að kristin kirkja standi frammi fyrir alvarlegri áskorun. Ekki fyrst og fremst frá múslimum sem flytja hingað. Ekki frá fólki sem aðhyllist aðra lífsskoðun. Heldur frá þeirri hættu að kirkjan sjálf leyfi ríkjandi hugmyndum samfélagsins að verða æðsta viðmið trúar hennar og kennslu. Við verðum að geta rætt hvort slík þróun eigi sér stað, hvar hún birtist og hvaða gögn styðja þá niðurstöðu. En við megum ekki kalla hvern guðfræðilegan ágreining hugmyndafræðilega aðför. Við þurfum að sýna fram á hvað er verið að gera, með hvaða hætti og á hvaða forsendum. Og þegar við gerum það verður gagnrýnin bæði réttlátari og sterkari. Páll hvetur Tímóteus til að varðveita það sem honum hefur verið trúað fyrir (2Tím 1:13–14). Hann hvetur hann ekki til að laga trúna að þeim hugmyndum sem njóta mestra vinsælda... Hann hvetur hann til trúfesti. Þess vegna verður kirkjan stöðugt að bera eigin kennslu undir mælikvarða Ritningarinnar. Ekki aðeins kennslu annarra… Okkar eigin líka. Má manneskjan velja Krist? Við erum þá komin aftur að manneskjunni sem flutti til Íslands. Ég vil að þessi manneskja njóti trúfrelsis. Ég vil að múslímsk fjölskylda viðkomandi fái að iðka trú sína í friði. Ég vil að viðkomandi geti lesið Kóraninn, Biblíuna og aðrar heimildir, borið þær saman og spurt erfiðra spurninga. Ég vil líka að kristnir menn hafi fullt frelsi til að segja þessari manneskju hver Jesús Kristur er. Ekki með hótunum né þvingun… Heldur með sannleika, kærleika og vitnisburði. Og ef viðkomandi kemst að þeirri niðurstöðu að Jesús sé Drottinn og frelsari, þá á sú ákvörðun ekki að leiða til ótta um eigið líf. Þar liggur einn af mikilvægum prófsteinum trúfrelsisins. Ekki hvort við leyfum fólki að trúa því sem við sjálf trúum. Heldur hvort við verjum líka frelsi þess sem kemst að annarri niðurstöðu. En sem kristinn maður vil ég ekki láta staðar numið þar. Ég trúi því að Jesús Kristur hafi dáið fyrir syndir okkar og risið upp frá dauðum. Ég trúi því að hjálpræðið sé af náð, fyrir trú á hann. Og ég trúi því að þessi boðskapur eigi erindi við sérhverja manneskju, óháð þjóðerni, menningu eða trúarlegum uppruna. Þess vegna vil ég að manneskjan fái að heyra fagnaðarerindið og þess vegna vil ég að kirkjan varðveiti fagnaðarerindið. Og þess vegna vil ég að við getum prófað sannleiksgildi boðskaparins með opna Biblíu og heiðarlegum rökum, án þess að þurfa að óttast spurningarnar. Því sannleikurinn þarf ekki að óttast rannsókn. Og kirkja sem hefur orð eilífs lífs í höndunum ætti ekki að þurfa að skipta því út fyrir valdbeitingu, þöggun eða hugmyndafræðilegan þrýsting. Við þurfum að varðveita krossinn... Ekki bara í Íslenska fánanum... Heldur í boðun kirkjunnar. Því ef við glötum hinum krossfesta og upprisna Kristi, hvað höfum við þá eftir af fagnaðarerindinu? Höfundur er iðnaðarmaður og guðfræðingur. Heimildir og gögn 1. “Morgunblaðið, 27. Október 2026 – Boðskapur sem stangast á við gildi samfélagsins” (https://www.mbl.is/frettir/innlent/2026/10/27/bodskapur_sem_stangast_a_vid_gildi_samfelagsins/). 2. “Muhammad Taqi Usmani – Answering Modernist Objections to the Punishment for Apostasy” (https://muslimskeptic.com/2024/05/13/modernist-objections-apostasy/). Ensk þýðing birt 2024, byggð á Takmilah Fath al-Mulhim, 2. Bindi. 3. “Breska innanríkisráðuneytið – Christians and Christian Converts, Pakistan, júlí 2026” (https://www.gov.uk/government/publications/pakistan-country-policy-and-information-notes/country-policy-and-information-note-christians-and-christian-converts-pakistan-july-2026-accessible). 4. “Dawn, 19. Ágúst 2023 – Viðbrögð Usmani við árásunum í Jaranwala” (https://www.dawn.com/news/1770939/sc-moved-for-action-against-jaranwala-church-attackers). 5. “Kóraninn 4:157 – samanburður á enskum þýðingum” (https://corpus.quran.com/translation.jsp?chapter=4&verse=157). 6. “Center for the Study of New Testament Manuscripts – Papýrus P46” (https://images.csntm.org/Manuscripts/GA_P46/P46%20%28CBL%20BP%20II%29.pdf). 7. “Tacitus, Annales 15.44 – Dickinson College Commentaries” (https://dcc.dickinson.edu/tacitus-annals/15-44). 8. “Alþingi – Þingskjal 167, 145. Löggjafarþing, um samviskufrelsi presta” (https://www.althingi.is/altext/145/s/0167.html). 9. “Þjóðkirkjan – Gerðir kirkjuþings 2015, 15. Mál, bls. 107” (https://kirkjan.is/library/Files/KirkjuThing/Gerdir-kirkjuThings/Ger%C3%B0ir%20kirkju%C3%BEings%202015.pdf). 10. “Lög um þjóðkirkjuna nr. 77/2021” (https://www.althingi.is/lagas/nuna/2021077.html). 11. “Umboðsmaður barna – Forsjá og trúfrelsi” (https://www.barn.is/born-og-unglingar/spurt-og-svarad/forsja-og-trufrelsi). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun