Miklar hækkanir á verði fiskimjöls það sem af er ári 17. júlí 2012 07:12
Hátt verð á korni, sojabaunum og hveiti hefur valdið miklum hækkunum á verði á fiskimjöli þannig að góð loðnuvertíð gæti orðið íslenska þjóðarbúinu mikil búbót á komandi vetri. Þetta skýrist af því að stór hluti af korni og sojabaunum er notaður í dýrafóður eins og fiskimjöl. Því hækkar fiskimjölið í verði í takt við kornið og sojabaunirnar. Þannig var heimsmarkaðsverð á fiskimjöli tæplega 1.300 dollarar á tonnið í janúar s.l. þegar síðasta loðnuvertíðin hófst. Í síðasta mánuði var þetta verð komið yfir 1.640 dollara á tonnið og hafði hækkað um rúmlega 25% á árinu. Reikna má með að hluti af makrílafla Íslendinga í sumar verði settur í bræðslu sökum þess hver verð á fiskimjöli er hátt um þessar mundir og fer þar að auki hækkandi. Þetta stafar meðal annars af því að á sama tíma hefur verið á frystum makríl farið lækkandi í Rússlandi sem er einn helsti markaður Íslendinga fyrir frystan makríl. Hefur verðið í Rússlandi lækkað úr um 1.800 dollurum á tonnið og niður í 1.500 dollara og er þar með orðið minna en fæst fyrir tonnið af mjölinu. Heimsmarkaðsverð á korni, sojabaunum og hveiti hefur rokið upp að undanförnu vegna þess að allt stefnir í uppskerubrest í Bandaríkjunum í haust. Miklir þurrkar hafa hrjáð Bandaríkjamenn undanfarnar vikur, þeir mestu í næstum sextíu ár. Fjallað er um málið í Financial Times en þar segir að verð á korni hafi hækkað um 44% á síðasta mánuði, verð á hveiti um 45% og verð á sojabaunum um 17%. Þessar hækkanir hafa vakið upp minningar um það sem gerðist árin 2007 til 2008 þegar svipaður uppskerubrestur olli miklum mataruppþotum í um 30 löndum víða um heiminn.
Mest lesið „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Viðskipti innlent Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Viðskipti innlent Miklar hækkanir í lágvöruverðsverslunum í byrjun árs Neytendur Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Viðskipti innlent Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Viðskipti innlent Ísland eins og stefnumótasíða í sjávarútvegi Atvinnulíf Uppsagnir hjá Alvotech Viðskipti innlent Forsteyptar húseiningar einfalda byggingarferlið Samstarf Fleiri fréttir Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Sjá meira