Slitastjórn Kaupþings stefnir vátryggingafélögum Þorbjörn Þórðarson skrifar 29. júlí 2012 19:25
Slitastjórn Kaupþings hefur stefnt hópi vátryggingafyrirtækja í Bretlandi til að fá framlengda samninga vegna ábyrgðartryggingar stjórnenda bankans. Milljarða króna hagsmunir gætu verið í húfi vegna þessara samninga. Um er að ræða samninga sem Kaupþing gerði á tryggingamarkaðnum Lloyd's í Lundúnum, en slitastjórn bankans stefnir hópi breskra vátryggingafélaga sem gerðu samninga um ábyrgðartryggingar stjórnenda við Kaupþings. Samkvæmt þessum samningum eru tryggingafélögin sem gerðu samningana við Kaupþing skuldbundin til að greiða bankanum, og nú slitastjórn hans, bætur fyrir það tjón sem stjórnendur og stjórnarmenn í bankanum ollu honum í störfum sínum og einnig vegna ábyrgða sem kunna að falla á bankann vegna samninga og annarra athafna þessara stjórnenda. Almennt eru í slíkum tryggingarskilmálum fyrirvarar. Til dæmis um ábyrgð sé úr gildi fallin ef stjórnendur hafa sýnt af sér saknæma háttsemi. Samningar vegna trygginganna féllu úr gildi eftir hrunið veturinn 2008-2009, en vegna ákvæða í samningunum er ekki hægt að gera kröfu á grundvelli þeirra nema þeir séu enn í gildi. Það þýðir að slitastjórn Kaupþings getur ekki krafist greiðslu á grundvelli tryggingasamninganna vegna atvika sem urðu þegar samningarnir voru í gildi ef samningarnir voru útrunnir þegar krafan var gerð. Af þessum sökum eru miklir hagsmunir í húfi fyrir þrotabú bankans að fá samningana framlengda til að geta gert kröfur á grundvelli þeirra og gætu hagsmunir sem eru undir í málinu hlaupið á milljörðum króna. Félögin hafa krafist frávísunar á stefnu slitastjórnar bankans og verður málflutningur um frávísunarkröfuna hinn 29. ágúst næstkomandi í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Mest lesið Daði Már kennir olíufélögunum um Viðskipti innlent Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Viðskipti innlent Miklar hækkanir í lágvöruverðsverslunum í byrjun árs Neytendur Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Viðskipti innlent Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Viðskipti innlent Ísland eins og stefnumótasíða í sjávarútvegi Atvinnulíf Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Viðskipti innlent Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Viðskipti innlent Fleiri fréttir Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Sjá meira