Skúli Mogensen er ríkasti Íslendingurinn Jón Hákon Halldórsson skrifar 26. júlí 2012 12:25 Skúli Mogensen er ríkasti Íslendingurinn samkvæmt útreikningum Viðskiptablaðsins.
Skúli Mogensen og eiginkona hans, Margrét Ásgeirsdóttir, eru ríkustu Íslendingarnir samkvæmt úttekt Viðskiptablaðsins. Blaðið lagðist yfir álagningaskrár ríkisskattstjóra sem birtar voru í gær og skoðaði eignir 170 manns. Hrein eign þeirra Skúla og Margrétar, það eru eignir umfram skuldir, nemur um 7,5 milljörðum króna. Á eftir þeim kemur Guðbjörg Matthíasdóttir, aðaleigandi Ísfélagsins í Vestmannaeyjum. Viðskiptablaðið segir að eignir hennar nemi 4,8 milljörðum króna. Í þriðja sæti koma svo hjónin Finnur Reyr Stefánsson og Steinunn Jónsdóttir með 4,7 milljarða króna. Skúli Mogensen vakti athygli þegar hann kom að rekstri tölvufyrirtækisins Oz um síðustu aldamót. Hann bjó í Kanada í sjö ár en seldi svo fyrirtæki sitt. Hann lýsti viðskiptasögu sinni í Klinkinu hér á Vísi fyrir fáeinum mánuðum. Þar sagði hann frá því að hann hefði búið í Kanada í sjö ár og byggt upp fyrirtæki þar. „Sömu helgi og allt hrynur á Íslandi erum við að selja félagið okkar til Nokia," segir hann í viðtalinu. Eftir bankahrunið hér á Íslandi hefur Skúli fjárfest í MP banka, Securitas, Advania og WOW Air.
Mest lesið Daði Már kennir olíufélögunum um Viðskipti innlent Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Viðskipti innlent Miklar hækkanir í lágvöruverðsverslunum í byrjun árs Neytendur Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Viðskipti innlent Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Viðskipti innlent Ísland eins og stefnumótasíða í sjávarútvegi Atvinnulíf Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Viðskipti innlent Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Viðskipti innlent Fleiri fréttir Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Sjá meira