Harpan átti ekki að kosta skattgreiðendur neitt Magnús Halldórsson skrifar 8. ágúst 2012 19:06
Tónlistar- og ráðstefnuhúsið Harpa átti ekki að kosta skattgreiðendur neitt og reksturinn átti að standa undir sér, að því er sagt var þegar ríki og borg ákváðu að ljúka við byggingu hússins og reka það til framtíðar. Til stendur að velta við hverjum steini og endurskipuleggja rekstur hússins. Endurskipulagning rekstrar Hörpunnar er nú á teikniborðinu og er áætlað að ný langtímaáætlun fyrir starfsemi hússins liggi fyrir í haust. Rekstur hússins hefur gengið afleitlega miðað við það sem upp var lagt með og en ef framheldur sem horfir verður reksturinn neikvæður um 407 milljónir króna á þessu ári, sem kallar á frekara fjármagn frá eigendunum. Sú staða er alls ekki í samræmi við það sem lagt var upp með þegar ákvarðanir voru teknar um aðkomu ríkis og borgar að verkefninu eftir hrunið. Þannig fullyrti Pétur J. Eiríksson, stjórnarformaður Portusar, eiganda Hörpunnar, sem síðan er dótturfélag móðurfélagsins Austurhafnar, að skattborgarar þyrftu ekki að hafa áhyggjur af byggingu hússins. Orðrétt sagði hann í útvarpsviðtali 24. janúar 2010: "Þetta snertir ekki ríkissjóð ... Þetta hús verður sjálfbært, það er okkar verkefni að reka þetta hús með sjálfbærum hætti. Þannig að tekjur hússins eiga að duga og munu til að greiða niður lán af byggingunni og það á að greiða niður allan rekstrarkostnað þannig að það er ekki meiningin að þetta hús verði á húninum hjá ríkisstjórninni til að betla peninga einu sinni á ári." Austurhöfn, sem er eigandi Hörpunnar, er 54 prósent í eigu ríkisins og 46 prósent í eigu borgarinnar. Heildarskuldir þess félags, sem skattborgarar eru í ábyrgðum fyrir, nema ríflega 23 milljörðum króna.
Mest lesið Daði Már kennir olíufélögunum um Viðskipti innlent Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Viðskipti innlent Miklar hækkanir í lágvöruverðsverslunum í byrjun árs Neytendur Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Viðskipti innlent Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Viðskipti innlent Ísland eins og stefnumótasíða í sjávarútvegi Atvinnulíf Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Viðskipti innlent Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Viðskipti innlent Fleiri fréttir Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Sjá meira