Bandarískir stórbankar gera ráð fyrir að evrusvæðið brotni upp Þorbjörn Þórðarson skrifar 6. ágúst 2012 12:03 Mun evrusvæðið brotna upp? Bandarískir bankamenn gera ráð fyrir því og segja það bara tímaspursmál.
Margir bankar á Wall Street eru nú að búa sig undir að evrusvæðið brotni upp með því að þau ríki sem eru í hvað mestum vandræðum, eins og Spánn og Grikkland, yfirgefi myntsamstarfið. Þetta hefur falist í því að bandarískir bankar eru kerfisbundið að lágmarka áhættu sína á evrópsk fjármálafyrirtæki og Evrópuríki með kaupum á svokölluðum skuldatryggingum og með sölu á kröfum sínum á evrópsk fjármálafyrirtæki, en frá þessu er greint í Financial Times. Gögna sýna að JPMorgan Chase, Bank of America, Citigroup, Morgan Stanley and Goldman Sachs hafa kerfisbundið minnkað útlánaáhættu sína gagnvart evrópskum fyrirtækjum og ríkjum. Flestir þessara banka hafa um langt skeið verið með áhættuteymi sem einbeita sér sérstaklega að vandanum á evrusvæðinu. Þá hafa bandarísku bankarnir ráðist í mikla vinnu bak við tjöldin til að tryggja að við breytingu á mynt hjá ríkjum sem yfirgefa evrusvæðið þurfi þeir ekki að sætta sig við greiðslur í drökmu eða pesetum þar sem gengið hefur verið fellt. Þetta þýðir að bankarnir hafa vaxandi áhyggjur áhyggjur af því að evrusvæðið brotni upp og þeir vilja lágmarka tjón sitt. Evrópski fjárfestingarbankinn réðst í svipaðar aðgerðir fyrr í sumar þegar hann lét breyta lánaskilmálum sínum við grísk fyrirtæki, en sú aðgerð var túlkuð þannig að bankinn teldi ekki lengur útilokað að Grikkland yfirgæfi Evrópska myntbandalagið. Citigroup telur það mun líklegra en áður að Grikkland segi skilið við evrusamstarfið og taki upp drökmu á ný, en greiningardeild bankans spáði því í síðustu viku að 90 prósent líkur væru á því að Grikkir segðu sig frá evrunni á næstu 12-18 mánuðum og að 75 prósent líkur væru á því að þetta myndi gerast innan hálfs árs. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Daði Már kennir olíufélögunum um Viðskipti innlent Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Viðskipti innlent Miklar hækkanir í lágvöruverðsverslunum í byrjun árs Neytendur Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Viðskipti innlent Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Viðskipti innlent Ísland eins og stefnumótasíða í sjávarútvegi Atvinnulíf Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Viðskipti innlent Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Viðskipti innlent Fleiri fréttir Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Sjá meira