Fjármálaráðherra fundar með hagsmunaðilum í ferðaþjónustu 13. ágúst 2012 13:02 Oddný G. Harðardóttir, fjármálaráðherra.
Oddný Harðardóttir fjármálaráðherra muna funda með hagsmunaaðilum í ferðaþjónustu í ráðuneyti sínu í dag vegna fyrirhugaðrar hækkunar á virðisaukaskatti á gistiþjónustu. Mikil óánægja er með fyrirhugaða hækkun innan ferðaþjónustunnar. Stjórnvöld hyggjast hækka virðisaukaskattinn úr 7 prósent í 25,5 prósent, og á þessi hækkun að skila tveimur og hálfum milljarði í ríkiskassann til viðbótar. Gatið sem stjórnvöld eru nú að leita leiða til þess að loka í fjárlögum fyrir næsta ár er á bilinu 16 til 20 milljarðar króna. Ýmist þarf að skera niður eða hækka skatta svoa að markmið náist. Hækkunin á ferðaþjónustuna hefur fallið í grýttan jarðveg hjá fyrirtækjum í ferðaþjónustu sem segja hana geta orðið að rothöggi fyrir greinina á miklum uppbyggingartíma, ekki síst þar sem ferðaheildsalar erlendis séu þegar farnir að selja ferðir hingað til lands tvö ár fram í tímanna á föstum verðum. Auknar tekjur vegna skatthækkunarinnar munu því ekki koma úr vasa erlendra ferðamanna heldur frekar beint frá fyrirtækjum sjálfum, sem dragi úr samkeppnishæfni þeirra og möguleikum. Á fundinn með ráðherra í dag koma forsvarsmenn Samtaka ferðaþjónustunnar, þau Erna Hauksdóttir framkvæmdastjóri og Árni Gunnarsson formaður, ásamt rekstraraðilum í gistiþjónustu hér á landi.
Mest lesið Daði Már kennir olíufélögunum um Viðskipti innlent Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Viðskipti innlent „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Viðskipti innlent Miklar hækkanir í lágvöruverðsverslunum í byrjun árs Neytendur Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Viðskipti innlent Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Viðskipti innlent Ísland eins og stefnumótasíða í sjávarútvegi Atvinnulíf Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Viðskipti innlent Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Sjá meira