Tim Ward: Hvergi krafist ríkisábyrgðar Jón Hákon Halldórsson skrifar 18. september 2012 14:53 Íslenska lögfræðiteymið í Lúxemborg.
Það er ekkert í tilskipun Evrópusambandsins um innistæðutryggingar sem kveður á um að ríkisábyrgðar eða ríkisfjármögnunar sé krafist, sagði Tim Ward, aðalmálflytjandi Íslendinga í Icesavemálinu þegar hann flutti mál Íslands fyrir EFTA dómstólnum í Luxemborg í morgun. „Tilskipunin gerir ríkinu skylt að setja upp og að stjórna innistæðutryggingakerfi, en það er ekkert kveðið á um það að ríkið verði að greiða bætur," bætti Tim Ward við. Tim Ward sagði að það væri alveg ljóst að til þess væri ætlast að kostnaðurinn við að fjármagna slíkt innistæðutryggingakerfi ætti í grundvallaratriðum vera borin uppi af lánastofnununum sjálfum. Þá sagði Tim Ward jafnframt að ef kröfur ESA, eftirlitsstofnunar EFTA, um að Íslendingum hefði borið að tryggja innstæðurnar hefði það strítt gegn reglugerð um ríkisaðstoð. Tim Ward fór ítarlega yfir tilurð innstæðutilskipunarinnar og sýndi fram á að innstæðutryggingakerfið rís ekki undir stórfelldu bankaáfalli, hvorki á Íslandi né annars staðar. Fjarstæðukennt sé að sjóðirnir hafi yfir fjármunum að ráða sem dugi til að greiða út meirihluta innstæðna í viðkomandi landi. Í slíkum tilvikum grípi stjórnvöld ævinlega til annarra aðgerða, t.d. með því að endurskipuleggja bankakerfið. Íslensk stjórnvöld hafi gripið til þeirra aðgerða sem tækar voru og nauðsynlegar til að koma í veg fyrir heildarhrun á Íslandi. Jafnframt hafi hagur innstæðueigenda í erlendum útibúum bankanna verið tryggður með því að þeim var veittur forgangsréttur við slit og skiptameðferð gömlu bankanna. Tim mótmælti ásökunum um brot gegn jafnræðisreglu. Grundvallaratriði væri að enginn hefði fengið greitt úr íslenska innstæðutryggingakerfinu og því væri alls ekki um að ræða mismunun innan þess. ESA hefði að öðru leyti ekki útskýrt í hverju meint mismununarbrot hefði falist og að í öllu falli væru réttlætingaraðstæður til staðar í skilningi dómaframkvæmdar á sviði Evrópuréttar. Tim Ward lauk málflutningi sínum um hádegisbil í dag að íslenskum tíma. Búist er við því að niðurstaða geti fengist í málið fyrir áramót.
Mest lesið Ísland eins og stefnumótasíða í sjávarútvegi Atvinnulíf Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Viðskipti innlent Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Alvotech Viðskipti innlent Kemur frá Icelandair til Varðar Viðskipti innlent Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Halda til loðnuveiða í kvöld Viðskipti innlent Frábært ár að baki hjá Bylgjunni Samstarf Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Samstarf Fleiri fréttir Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Sjá meira