Marel sendir nýliðana í fiskvinnslur BBI skrifar 13. september 2012 15:02 Mynd úr safni. Mynd/Stefán Karlsson
Nýliðar hjá fiskiðnaðarsetri Marels eru látnir vinna eina til tvær vikur í fiskvinnslum svo þeir geti komist í snertingu við framleiðsluvörur sínar og áttað sig betur á því hvernig er að vinna í fiskiðnaði. Fiskiðnaðarsetur Marels fæst við vöruþróun í fiskiðnaði svo heimsóknir í fiskvinnslur hjálpa starfsfólkinu vel að skilja hvað það er að fást við. „Við erum nýbúin að senda nokkra nýliða. Það er markmiðið að allir fái að kynnast fiskiðnaðinum," segir Ólöf Sigurgeirsdóttir, rekstrarstjóri fiskiðnaðarseturs Marels. Á fiskiðnaðarsetri Marels er leitast við að ráða starfsfólk sem hefur reynslu af fiskvinnslu. Það tekst hins vegar ekki alltaf og þá eru nýliðarnir sendir í stuttar tarnir í fiskvinnslu svo þeir fái smjörþef af fiskiðnaðinum. „Þetta er oft nýútskrifað fólk úr verkfræði svo að heimsóknir í fiskvinnslurnar tengja það við viðfangsefnið," segir Ólöf. Gunnar Atli Thoroddsen, verkfræðingur og starfsmaður fiskiðnaðarsetursins, eyddi einni viku við færibandið í fiskvinnslu. Hann segir að vinnan hafi tekið á. „Þetta var erfiðisvinna," segir hann. En þrátt fyrir bakverki er hann sannfærður um að heimsóknin hafi haft góð áhrif og hjálpað honum að skilja fiskiðnaðinn. „Það var nauðsynlegt að komast inn í þetta hugarfar og skilja hvað er í gangi," segir hann.
Mest lesið Ísland eins og stefnumótasíða í sjávarútvegi Atvinnulíf Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Viðskipti innlent Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Alvotech Viðskipti innlent Kemur frá Icelandair til Varðar Viðskipti innlent Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Halda til loðnuveiða í kvöld Viðskipti innlent Frábært ár að baki hjá Bylgjunni Samstarf Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Samstarf Fleiri fréttir Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Sjá meira