"Galið að láta veiðigjaldið bitna á sjómönnum" BBI skrifar 27. september 2012 15:43 Mynd/GVA
Framkvæmdastjóri Sjómannasambands Íslands segir að það komi ekki til greina að sjómenn taki á sig hluta veiðigjaldsins sem samþykkt var á Alþingi síðasta vor. Sjómenn og útgerðarmenn eiga nú í kjaradeilu og útgerðin fer fram á að sjómenn taki á sig launaskerðingu vegna veiðigjaldanna sem voru samþykkt á Alþingi í vor. „Mér finnst alveg galið að ætla að taka þetta af sjómönnum," segir Hólmgeir Jónsson, framkvæmdastjóri Sjómannasambands Íslands. „Ef maður skoðar hver var vilji löggjafans þegar veiðigjaldið var samþykkt er alveg skýrt að gjaldið er tekið af umframhagnaði útgerðarinnar." Honum finnst mjög undarlegt að það þurfi að lækka laun starfsfólks ef að umframhagnaður útgerðarinnar minnkar. Kjarasamningar sjómanna losnuðu í byrjun árs 2011. Þá vildu fulltrúar LÍU ekki semja um kjör sjómanna fyrr en málin varðandi stjórn fiskveiða væru komin á hreint á Alþingi. Í vor var kjaradeilunni vísað til Ríkissáttasemjara og í næstu viku munu deiluaðilar funda. Að sögn Sævars Gunnarssonar, formanns Sjómannasambands Íslands, er himinn og haf milli deiluaðila og margs konar ágreiningur sem þarf að leysa. Fjallað var um málið í Morgunblaðinu í dag.
Mest lesið Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Viðskipti innlent Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Viðskipti innlent Kemur frá Icelandair til Varðar Viðskipti innlent Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Viðskipti innlent Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Siggi til Varist Viðskipti innlent Frábært ár að baki hjá Bylgjunni Samstarf Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Samstarf Halda til loðnuveiða í kvöld Viðskipti innlent Fleiri fréttir Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Sjá meira