"Skýrslan lítur svolítið út eins og pantað plagg" BBI skrifar 23. september 2012 10:51 Unnur Brá Konráðsdóttir sjálfstæðiskona. Mynd/GVA
Skýrsla Seðlabankans um valkosti Íslands í gjaldmiðils- og gengismálum sem kom út í vikunni var upphaflega skrifuð til að fjalla um íslensku krónuna eða evruna sem valkosti fyrir Ísland. Þetta kom fram í umræðum í útvarpsþættinum Sprengisandi á Bylgjunni í dag. „Svo hún litast svolítið af þessum efnistökum," sagði Lilja Mósesdóttir, en niðurstaða skýrslunnar var að Ísland hefði í raun aðeins tvo raunhæfa kosti í gjaldmiðilsmálum, þ.e. að taka upp evru eða halda sig við krónuna. „Þessi skýrsla lítur svolítið út sem pantað plagg," sagði Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hún telur af ýmsum ástæðum að evran sé ekki raunhæfur kostur í næstu framtíð. Það vekur athygli Unnar að skautað sé fram hjá Bandaríkjadollarnum sem möguleika fyrir Ísland. „Það þarf eiginlega að skoða það betur af hverju er skautað fram hjá þessum valkosti." Lilja Mósesdóttir gerði athugasemdir við mælikvarðann sem mikið er stuðst við í skýrslunni þegar evran er metin sem kostur. Sá mælikvarði er að Ísland hafi mest viðskipti við Evrópusambandið. Lilja hefði viljað styðjast meira við tengsl hagsveifla landanna sem rannsökuð voru. Hagsveiflur Íslands og Evrópusambandsins eru mjög ólíkar. Hins vegar eru hagsveiflur Íslands og annarra Norðurlanda líkari og því telur Lilja að heillavænlegt gæti verið að horfa til þeirra gjaldmiðla. „Þetta hefur ekki verið kannað nægilega mikið," segir hún. Upptaka af umræðunum er á hlekknum hér að ofan.
Mest lesið Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Viðskipti innlent Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Viðskipti innlent Kemur frá Icelandair til Varðar Viðskipti innlent Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Viðskipti innlent Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Siggi til Varist Viðskipti innlent Frábært ár að baki hjá Bylgjunni Samstarf Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Samstarf Halda til loðnuveiða í kvöld Viðskipti innlent Fleiri fréttir Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Sjá meira