SÍ: Stýrivextir óbreyttir 3. október 2012 09:11 mynd/frikki
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Í yfirlýsingu peningastefnunefndar segir að verðbólga hafi verið nokkru minni en spáð var í ágúst. Á móti kemur að gengi krónunnar er lægra en reiknað var með í spánni og töluverð óvissa er um gengisþróun á næstunni. Stýrivextir, veð til sjö daga, helst því óbreytt eða 5.75 prósent, daglánavextir verða 6,75 prósent, hámarksvextir á 28 daga innistæðubréfum verða 5.5 prósent og innlánsvextir 4.75 prósent. Hægt er að lesa tilkynninguna í heild sinni hér fyrir neðan:Yfirlýsing peningastefnunefndar 3. október 2012 Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Vísbendingar eru um hægari bata innlendrar eftirspurnar en spáð var í ágúst. Hins vegar hefur heldur dregið úr áhættu vegna fjármálakreppunnar í Evrópu. Verðbólga hefur verið nokkru minni en spáð var í ágúst, en á móti kemur að gengi krónunnar er lægra en reiknað var með í spánni og töluverð óvissa er um gengisþróun á næstunni. Verðbólguhorfur hafa því lítið breyst frá síðasta fundi nefndarinnar. Verðbólguvæntingar eru enn yfir markmiði bankans, þótt þær hafi lækkað eitthvað á suma mælikvarða. Laust taumhald peningastefnunnar á undanförnum misserum hefur stutt við efnahagsbatann. Hækkun vaxta í maí og júní og hjöðnun verðbólgu hafa dregið umtalsvert úr slaka peningastefnunnar. Eftir því sem slakinn hverfur úr þjóðarbúskapnum er nauðsynlegt að slaki peningastefnunnar hverfi einnig. Að hve miklu leyti þessi aðlögun á sér stað með hærri nafnvöxtum Seðlabankans fer eftir framvindu verðbólgunnar, en miðað við óbreyttar horfur um verðbólgu og efnahagsbata er líklegt að nafnvextir þurfi að hækka frekar á næstunni. Nr. 36/2012 3. október 2012
Mest lesið Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Viðskipti innlent Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Viðskipti innlent Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Viðskipti innlent Kemur frá Icelandair til Varðar Viðskipti innlent Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Viðskipti innlent Siggi til Varist Viðskipti innlent Frábært ár að baki hjá Bylgjunni Samstarf Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Samstarf Uppsagnir hjá Alvotech Viðskipti innlent Fleiri fréttir Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Sjá meira